Það eru viðtekin sannindi að það eru aldrei gerð góð kaup í janúarglugganum. Nema auðvitað í janúar 2006. Þá komu Patrice Evra og Nemanja Vidic til United og þó að gluggar hafi ekki komið við sögu hjá Nemanja síðan þá, og þaðan af síður gluggagægjar þá er erfitt að mæla mót því að á vellinum virkar Serbinn okkar oft ansi grályndur, svo mjög að manni bregður næstum þegar hann sést brosa.
En þannig viljum við líka hafa hann, og það var kærkomin sjón að sjá hann koma inná um síðustu helgi og vonandi að hann nái fyrri styrk í vörninni.
Stefan says
hef saknað hans :(