Það var hörku spennandi kosning hér á síðunni um leikmann janúarmánaðar en það fór á svo á endanum að Michael Carrick var kosinn bestur með 33% atkvæða, 2% meira en Patrice Evra sem kom næstur í valinu. Robin Var Persie var svo þriðji með 19% atkvæða.
Eins og venjulega spilaði Carrick næstum því allar mínúturnar í deildinni í janúar en var hvíldur í bikarleikjunum gegn West Ham. Hann hefur stjórnað miðjuspilinu eins og herforingi undanfarið og fyrir utan eina slæma sendingu aftur á De Gea í leiknum gegn Southampton (sem reyndist sem betur fer ekki of dýrtkeypt) þá steig hann ekki feilspor. Hans besti leikur var líklega gegn sínum gömlu félögum í Tottenham en því miður fell sú frammistaða í skuggann á jöfnunarmarki Tottenham í lok leiksins. Eftir slæma byrjun í haust hefur vörn United verið að spila betur og betur og má að einhverju leiti þakka yfirvegun Carricks aftast á miðjunni um það.
Að lokum er gaman að segja frá því að lesendur ManUtd.com völdu Robin Var Persie sem leikmann janúarmánaðar, nokkuð örugglega, með 53% atkvæða.
McNissi says
Þessi úrslit endurspegla gæðin í lesendahóp þessarar síðu, ekkert nema fagfólk sem kann að meta vinnusemi og stöðugleika!
jóhann ingi says
Carrick er vel ad thessu komin. Hann hlýtur ad vera í skyunum med thetta! :D Annars verdur gaman ad sjá hvernig lidinu verdur stillt upp gegn Everton á sunnudaginn. Lidid thar á sennilega eftir ad endurspegla dálítid lidid í meistaradeildinni á Midvikudaginn.
Ég sé lidid svona: De Gea, Evra, Rafael, Smalling, Vidic, Nani, Giggs, Anderson, Cleverley Rooney og RVP
Áfram United !
Baldur Seljan says
Carrick er vel að þessu kominn, einn sá allra vanmetnasti í deildinni…
Snorkur says
Vanmetinn leikmaður sem er einn af þeim betri í deildinni í sinni stöðu .. þó ég se ekki eins hrifinn af honum í hlutverki stoppara ..
en sendingarnar :)
.. nú ef þið hafið gaman af : þá var þessi frétt send á mig fyrir skömmu, (tengist ekki Carrick en :P)
http://tuttugututtugu.com/2012/11/12/manchester-united-efst-i-umhverfisdeildinni/