Hver hefði ekki þegið þessa niðurstöðu fyrirfram? Eins og var alveg vitað fyrir leikinn var stillt upp til svakalegrar baráttu í leiknum. Jones var ekki beinlinis settur til höfuðs Ronaldo en vissi þó alltaf… eða næstum því alltaf hvar hann var. Welbeck, Rooney og Kagawa voru síðan hlaupageiturnar.
Leikurinn var hasar frá upphafi og besti maður United í leiknum, David de Gea, kom strax á fimmtu mínútu með frábæra fingurgómavörslu frá Coentrão, í stöng og út. Gríðarlega mikilvæg varsla og hefði breytt miklu ef sá hefði farið inn. Sjá GIF mynd.
Real pressaði frá upphafi og United dró sig verulega aftarlega og reyndi að stíla á skyndisóknirnar, alveg eins og menn höfðu gert ráð fyrir. Reyndar var það svo að Kagawa datt oft fremst þegar Rooney og Van Persie voru frekar úti á köntum
Það var því frekar gegn gangi leiksins, en í stil við staðsetningar Kagawa þegar hann vann horn eftir baráttu við Sergio Ramos við vítateigslínuna, reyndar ranglega því boltinn fór af Shinji. Rooney tók hornið, Danny Welbeck hristi Ramos af sér, þó sá síðarnefndi héngi í honum, og Danny náði síðan glæsilegum skalla í hornið fjær. Reyndar stóði López sig ekkert sérlega vel þarna en markið engu að síður magnað.
Real setti þá pressuna enn frekar, United var enn aftar og markið lá í loftinu. Eini veiki kafli De Gea var um þetta leyti, hann átti tvær frekar máttlitlar kýlingar sem þó sköpuðu ekki vanda. Hann átti síðan ekki nokkurn möguleika í jöfnunarmark Real. Snarlega tekið innkast vinstra megin barst til Di María og Phil Jones þeim megin á vellinum frekar en að vera nær Ronaldo. Því var það þegar fyrirgjöf Di María kom þá var Evra eini maðurinn í Ronaldo. Ekki að það skipti máli því stökk Ronaldo var óheyrilega hátt og skallinn hamarfastur út við stöng, gersamlega óverjandi fyrir De Gea og eins og Fergie sagði eftir leik
What a header from Ronaldo, unbelievable. You can’t stop that. I said to Patrice at half-time „Patrice, did you not want to challenge for that?“ but then I saw the video and thought „what was I talking about?
Stuttu seinna spiluðu Kagawa og Van Persie vel saman vinstra megin við teiginn og Robin átti flotta fyrirgjöf sem Welbeck komst í en López varði skot hans.
Engu að síður var það pressa Real sem var aðalmálið. Í hvert sinn sem United náði boltanum í vörninni áttu þeir í mesta basli við að koma boltanum áfram, halda honum og sækja. Eftirtektarvert þó alltaf í leiknum að þegar Van Persie fékk boltann náði hann alltaf að gera eitthvað af viti. Vörnin hélt þó út hálfleikinn með góðri frammistöðu, nema Rafael virkaði óöruggur, fékk gult fyrir klaufalegt tuddabrot á Özil. De Gea var aftur kominn í stuð, varði t.d. vel frá Özil.
Rétt fyrir hálfleik var Phil Jones nokkuð heppinn að sleppa við víti þegar hann ýtti helst til hressilega á Di María en við sluppum með 1-1 inní hálfleik
Í seinni hálfleik var að miklu leyti sama upp á teningnum, en þó tók United mun betur á móti pressu Real. Rafael var t.d. traustari. Bæði lið áttu þó mjög góð færi. Flest færi Real voru þó skot af lengra færi og nær öll þeirra sá De Gea um, ýmist af öryggi eða með glæsilegum vörslum. Sú besta kom þegar Coentrão hljóp upp að fjærstöng og komst á endann fyrirgjöf Khedira. De Gea þurfti að beita fótunum með tilþrifum enda ekki í jafnvægi til að skutla sér. Sjá GIF mynd.
Dómari leiksins var annars frekar slakur án þess að hallaði á annað liðið. Hann hefði algerlega getað gefið rautt spjald á Raphaël Varane fyrir að sparka í og toga í Evra þegar sá síðarnefndi var allt í einu kominn inn fyrir vörn Real eftir frábæra stungusendingu. Hann sá þá ekki einu sinni ástæðu til að flauta.
Giggs kom inná fyrir Kagawa á 64. mínútu og stuðningsmenn Real sýndu honum þann heiður að klappa fyrir honum þá. Kagawa hafði verið frekar áhrifalaus mestan part leiksins og átti það sinn þátt í að Rooney þurfti að vinna enn meira og oftast þannig að lítinn árangur bar. Rooney fór reyndar útaf undir lokin fyrir Anderson.
En um miðjan hálfleikinn átti Van Persie færi í tvígang sem hefði mátt nýta. Fyrst fékk hann stungu frá Rooney en López varði í slá, Real hreinsaði og Carrick skallaði háan svifbolta inn á teiginn þar sem Van Persie lúrði órangstæður en hitti boltann illa, og Alonso náði boltanum áður en hann lak yfir línuna.
Það sem eftir lifði leiks var leikur United betri en hann hafði verið. De Gea sá um að verja skotin en sóknir United voru gríðarhættulegar. Boltinn lá eitt sinn fyrir Giggs í opnu færi í teignum en hann ákvað af óskiljanlegum ástæðum að taka snertingu og boltinn fór á endanum af honum útaf. Phil Jones átti mikilvæga blokkeringu á Ronaldo við markteig á 91. mínútu en United átti síðasta færið. Diego López varði þá mjög vel skot Van Persie, United fékk horn, en dómarinn flautaði af eftir 92 mínútur og 55 sekúndur, og leyfði ekki hornið. Hann hafði greinilega ekki áhuga á að reglan segi að spila eigi að lágmarki viðbótartímann.
‘Skemmtilegustu’ tilþrif dómarans voru annars gul spjöld sem hann gaf Van Persie og Valencia. Van Persie fyrir að þreifa á skeggi Ramosar, og Valencia fyrir að vera með hendi þar sem Ramos gat skallað í hana. Já, Sergio Ramos er ekki mesti heiðursmaður á velli, en gott að hann er heill heilsu, það leit út eftir bæði atvikin eins og hann hefði höfuðkúpu- eða kjálkabrotnað
Allt í allt mjög góð frammistaða. Það er ekki hægt að líta framhjá því að United spilaði mjög aftarlega og manni var fjarri því að vera rótt. En vörnin stóð sig og þegar hennar naut ekki við var maður leiksins til varnar, David de Gea. Ef einhver er enn að efast um hæfileika þessa pilts þá hlýtur þessi leikur endanlega að kveða þá vitleysu í kútinn.
Það er ekki síður gaman að því að næstbesti maður United var annar gríðarlega vanmetinn og stundum úthrópaður leikmaður, Danny Welbeck. Hann var hreinlega út um allt. Annað hvort að berjast um að hirða boltann af Real mönnum eða að halda uppi spili, skapa, nú eða skora eina markið okkar. Vonandi að þessi frammistaða hans þaggi sömuleiðis niður í gagnrýninni á hann.
Þriðji sem ég sé ástæðu til að hrósa er Robin van Persie. Hann hefði svo sem mátt skora, en engu að síður var það gríðarlega mikilvægt í þessum stressleik að ef boltinn kom á hann mátti stóla á að hann næði að taka hann til sín, halda honum og skila honum frá sér. Venjulega væri það á miðjunni og frammi, en pressan var svo mikil að hann var iðulega að þessu allt að eigin teig.
En aftur, þetta var mikið streð. Heppnaðar sendingar voru nær hending, Real náði 69% hlutfalli en United aðeins 62%. Til samanburðar var versta hlutfall okkar í Meistaradeildinni hingað til 85%. Ótrúlegar tölur, og ekki bara okkar.
Tístval kvöldsins:
Anderson has just scored one if the greatest goals I've ever seen in the warm up! Think zidane in champions league final!
— seoirse (@seoirsemac) February 13, 2013
Nei Capacent, ég ætla ekki að svara í símann þegar þrettán mínútur eru liðnar af þessum leik.
— Egill Óskarsson (@Egillo) February 13, 2013
The Manchester United fans making more noise than the whole of the Bernabeu. Madrid, as usual, struggles when they can't counterattack
— Guillem Balague (@GuillemBalague) February 13, 2013
United fans being attacked by police with batons on concourse under the stand , totally unprovoked , women in tears – uefa a disgrace !!
— Mark (@mancmark55) February 13, 2013
– Magnað: RT @SamWallaceIndy
Uefa stats put Carrick at top of distance covered of all outfield players (5.9km). He's had a good half.— Rauðu djöflarnir (@raududjoflarnir) February 13, 2013
Welbeck played a great game! He is sharp and showed some skills!
— Gerard Piqué (@3gerardpique) February 13, 2013
In fairness to Rooney, he sacrifices a lot of individual ambition for the team. Wasn't great tonight though.
— Ben Hibbs (@BenHibbs) February 13, 2013
https://twitter.com/Tr16ia/status/301807719466274816
I'm glad we don't have a big game next. Those players are going to be knackered. Worked so hard tonight. Lots of changes needed.
— Scott Patterson (@R_o_M) February 13, 2013
Ljúkum þessu með innilegu faðmlagi, komdu nú heim, vinur!
ellioman says
Frábær úrslit og frábær frammistaða! Punktur!
Vissum alltaf að þetta yrði gífurlega erfiður leikur og hefði ég alltaf þegið 1-1 fyrir leik. Welbeck var hreint út sagt stórkostlegur, De Gea frábær í markinu og Jones náði að trufla leikmenn Real allsvakalega allan leikinn.
Þó ég hafi lítið gaman af því að gagnrýna dómara þá átti hann hrikalega lélegan leik í kvöld. Alveg fáránlegt að leikmaður Real fékk ekki rautt fyrir brotið á Evra þegar United var í skyndisókn og Evra kominn í dauðafæri.
Það er svo mjög gott fyrir okkar menn að næsti leikur sé gegn Reading á Old Trafford. Leikmennirnir eru án efa dauðþreyttir eftir þennan leik og kæmi mér ekki á óvart að sjá gjörbreytt lið um helgina.
…og já, Ramos er svo sannarlega kominn á listann minn yfir mest óþolandi fótboltaleikmenn heimsins.
Stefán Arason says
Geðveik úrslit, og De Gea maður leiksins og Welbeck líka frábær
Steini says
Welbeck og de Gea menn leiksins. Carrick feiknarlega öruggur. Mjög ánægður með Jones. Frábær úrslit í frábærum fótboltaleik. Undarlegt atriði með hornið í lokinn en þetta eru víst reglurnar.
Krummi says
Þrusu leikur. Welbeck hörkuduglegur og hann ásamt De Gea, menn leiksins.
Smá svekkelsi með hornið í lokin en ekkert til að tuða yfir.
Annars fannst mér Rafael virkilega óöruggur og langt frá sínu besta.
Viðar Friðgeirsson says
Sammála síðustu og fyrstu ræðumönnum. Fín úrslit í fínum leik okkar manna. Útivallarmark gulls ígildi og gæti ráðið úrslitum. Nú dugar 0-0 jafntefli og skori Man Utd. þurfa Ronaldo og félagar að skora 2. Skori hinsvegar Madridingar þurfum við líka að skora 2 til að komast hjá vítapyrnukeppni. Gaman að þessu :-)
Sveinbjorn says
Ellioman djöfull er ég sammála þér unn hann Ramos, ég horfi ekki á marga leiki með Real,
en í þeim leikjum sem ég sé hann spila.. Guð minn góður, þetta er mesta kunta sem ég hef
séð spila fótbolta, hann er með gróf og tilgangslaus brot, t.d. áðan þegar hann olnbogaði
Evans i hálsinn/kjálkann, og þegar hann er ekki að brjóta af sér eins og gerpið sem hann er
þá er hann að fiska og fiska brot sem aldrei áttu sér stað með því að færa smettið sitt
nálægt hendi á andstæðingnum og láta eins og hann hafi verið með gunnar Nelson sitjandi
ofaná honum, berjandi hann í klessu. Það myndi gleðja mig mikið ef einhver stór karlmanns
jaxl myndi tækla þetta hor og margfótbrjóta hann á báðum gúmmífótunum hans.
Þessi Vagína er einfaldlega skömm við íþróttina og ætti að fara að hugsa um að fara að leika
eitthver leikrit eftir Shakespeare, þar getur hann vælt og kveinað eins og rottutuska og allir
munu elska hann. Þessi maður er ógeð.
Annars var de Gea bestur og Welbeck flottur. Síðan er gaman að segja frá því að ég hef
alltaf stutt þá báða. Alltaf, síðan þeir byrjuðu að spila fyrir félagið.
Sveinbjorn says
Enda er ég frábær gaur
DMS says
Maður hefði tekið þessi úrslit með þökkum fyrirfram. Það er samt erfitt að vera ekki pínu svekktur að ná ekki að stela þessu með færunum sem Robin van Persie fékk sem og Giggs. En við getum líklega þakkað David de Gea fyrir það að við fengum bara á okkur eitt mark.
Djöfull var Mourinho eitthvað pirraður í þessum leik, alveg frá upphafi. En hann getur allavega ekki kvartað yfir dómaranum.
Tek undir með það hversu pirrandi Sergio Ramos er. Vonandi er hann búinn að jafna sig í hökunni eftir að Robin van Persie rotaði hann í fyrri hálfleik…
Ari says
Í guðs bænum hættiði að tuða um dómarann eða Ramos. De Gea, Welbeck, Ferdinand, Carrick, Evans, Persie. Sérstaklega De Gea og Welbeck að minna á sig og sýna hvað þeir eru öflugir. Við vorum aðeins á eftir Real i leiknum en hefðum alveg getað unnið hann. Heimaleikurinn er eftir og nú eru líkurnar okkur í hag. Eins og heyrðist i United stuðningsmönnum á Bernabeu, We´ll never die.
Björn Friðgeir says
Skýrslan komin. 1-1? Þigg það, takk. Og næsti leikur á mánudag, hvíla sig vel á morgun, piltar!
Viðar Friðgeirsson says
Uss, uss, uss, Sveinbjorn. Svona talar maður ekki um andstæðinga sína, jafnvel þó þeir eigi það skilið og ég sé þér sammála. Læt mér nægja að hugsa honum þegjandi þörfina þessum Ramos, þessari kéllingu. Hef reyndar alltaf haldið því fram að suðurevrópuboltinn sé kéllingabolti þar sem allt snýst um góða leikhæfileika inná vellinum. Sá sem dobblar dómarann upp úr skónum hefur góða leikhæfileika og um þann titil keppa þeir sín á milli. Ronaldo var og er illa haldinn af þessum sjúkdóm. Þoldi aldrei þessa takta hans þegar hann spilaði með Man. Utd og var manna fegnastur þegar hann var seldur. Burtu með svona kóna úr boltanum. Ég vil rautt á þá sem staðnir eru að leikaraskap, reyna að fiska og fiska út um allan völl. Óþolandi gæjar. Fá svo bara gult fyrir vikið. Ég vil sjá beint rautt til að venja þessar kéllingar af þessum ósið í eitt skipti fyrir öll.
Rúnar says
Tók eftir því í leiknum að áhorfendur voru með tárin í augunum….
Hvað var eiginlega að gerast í áhorfendastúkunum?
Friðrik says
Sáu þið þegar áhorfendur stóðu upp og klöppuðu fyrir Giggs þegar hann kom inná ??
Alveg magnað , hef aldrei séð þetta í ensku deildinni.
F.E.V says
Hvað var að frétta með rooney í þessum leik guð minn góður hvað það var pirrandi því þessi leikmaður er svo góður! en hann átti skelfilegan dag sama þott menn seigja að hann hafi verið að vinna einhverja skíta vinnu þá held ég að allir united menn gera þær kröfur á þennan mikla fótboltasnilling að geta sent almennilega sendingar hann átti allt of margar feil sendingar hann þarf að eig abetri leik svona lykilmaður
en góður leikur og við t0kum þetta á oldtrafford
Björn Friðgeir says
Franska fótboltablaðið L’Equipe er komið með einkunnir sínar fyrir leikinn. Nú eða einhvern leik, Sé ekki alveg þetta sé leikurinn sem ég horði á í gær
Lopez 8, Arbeloa 5, Varane 5, Ramos 5, Coentrão7, Khedira 7, Xabi 6, Di Maria 7, Özil 5, CR7 8, Benzema 4
De Gea 7, Evra 6, Evans 5, Rio 6, Rafael 3, Carrick 5, Jones 6, Welbeck 6, Kagawa 5, Rooney 6, RvP 7
Egill Óskarsson says
Maður gæti haldið að Sveinbjörn ætti við einhver issue að glíma varðandi æxlunarfæri kvenna. Ekki dettur mér í hug allavega að líkja manni eins og Ramos við þau. Ekki heldur reyndar við konur eins og Viðar gerir.
En þetta voru fín úrslit en ég hef áhyggjur af því hvað liðinu gengur oft illa að halda boltanum. Það lagaðist ekki fyrr en Real þreyttust og Giggs kom inn á. Ég er pínu hræddur við seinni leikinn ef þetta lagast ekki.
Gaman að sjá De Gea og Welbeck vera bestu mennina í þessum leik.
siggi gisli says
Var sáttur þegar Mourinho pirraðist út í Ramos þegar Valencia braut á honum. Ég get annars ekki gert upp við mig mann leiksins Carrick, Jones, Welbeck og De Gea. Rio og RVP spiluðu einnig mjög vel . Fokking þrjár VIKUR í seinni leikinn!
Gretzky says
Allt sem fyrsti maður, ellioman, sagði!
siggi United maður says
Það sem Ellioman sagði.