Klukkan 15:45 í dag verður dregið í riðla í Meistaradeild Evrópu. Síðasti vetur var okkar slakasti í sex ár í Meistaradeildinni þannig að held að við séum flest nokkuð bjartsýn á að Man Utd geri a.m.k betur en síðasta vetur. Það eru þó margir mjög sterkir klúbbar sem gætu dregist í riðil með United, þetta gæti því orðið erfiður vetur. Við skulum svo sannarlega vona að við fáum frekar léttan drátt seinni partinn í dag.
Skoðum hvaða möguleika við höfum. Dregið verður eitt lið úr hverjum potti, og myndar það einn riðill. Það getur ekki komið upp sú staða að lið frá sama landi, lendi í sama riðlinum.
Pottur 1
- Chelsea
- Barcelona
- Real Madrid
- Manchester United
- Bayern Munich
- Arsenal
- Porto
- AC Milan.
Út frá UEFA stærðfræðinni þá er Arsenal í sterkasta pottinum, en ekki Man City.
Pottur 2
- Valencia
- Benfica
- Shakhtar Donetsk
- Zenit St Petersburg
- Schalke
- Manchester City
- Braga
- Dynamo Kiev.
Það er ekki séns að lenda með City, þannig að helst myndi ég vilja sleppa við Benfica, við vitum afskaplega vel hversu sterkir þeir eru. Best væri að fá Braga eða Schalke og sleppa þannig við vetrarferðir til Austur-Evrópu.
Pottur 3
- Olympiakos
- Ajax
- Anderlecht
- Juventus
- Paris St Germain
- Galatasaray
- Lille
- Spartak Moscow.
Ekki vitund slakari pottur en númer 2. Hér viljum við alls ekki Juventus og Paris St Germain, þó svo Frakkarnir hafi nú ekki verið sannfærandi í frönsku deildinni undanfarið. Lille, Anderlecht eða Olympiakos takk fyrir.
Pottur 4
- Borussia Dortmund
- BATE Borisov
- Dinamo Zagreb
- Malaga
- Montpellier
- FC Nordsjælland
- Celtic
- CFR Cluj.
EKKI DORTMUND TAKK FYRIR! Þó svo Man Utd hafi keypt Kagawa af þeim þá eru Dortmund ógnar sterkir og alls ekki völlur sem við viljum heimsækja. Restin skiptir mig ekki máli svo framarlega sem við fáum ekki Dortmund.
Annars kemur þetta allt í ljós seinni partinn í dag. Ég ætla að taka nokkur símtöl og sjá hvort ég get ekki fengið Barcelona, Man City, Juventus og Dortmund saman í riðil.
Árni Torfason says
Ég held að MUFC hefði gott af því að fá einhver sterk lið með sér í riðil. Það hefur stundum verið erfiðara fyrir þá í Meistaradeildinni að vera í of léttum riðli.
Svona vil ég sjá þetta:
MUFC
Valencia (gæti ruglað valencia að það sé maður í mufc sem heitir valencia)
Ajax (verður gaman að sjá Kolbein niðurlægðan í samtals 5-0 sigri united)
Celtic (mufc étur celtic og þá geta Írar hætt að væla um að þeirra deild sé eitthvað í áttina að því sem enska deildin er)
Tryggvi Páll Tryggvason says
Á síðasta tímabili fengum við líklega léttasta riðil allra tíma en gátum ekki komist upp úr honum. Væri til í að fá temmilega erfiðan riðil með litlum ferðalögum svona til þess að halda mönnum á tánum án þess að drepa þá úr ferðaþreytu.
ellioman says
Einu kröfurnar sem ég hef er að fá FC Nordsjælland! Aldrei að vita nema maður myndi þá ekki splæsa á einn leik í vetur!
Björn Friðgeir says
Sigurjón: Þú verður að reka græjarann þinn. Hann klikkaði á Juve!
Sigurjón says
Vissi að það væri ekki hægt að treysta Steven McManaman!