Klukkan var orðin kortér yfir glugga í gærkvöldi þegar allt í einu flaug frétt sem eldur í sinu að öllum að óvörum hefði United tryggt sér Fábío Coentrão að láni frá Real Madrid. Fljótlega fóru að berast fréttir um að faxið hefði klikkað, og þó Daily Mail reyndi að halda því fram að La Liga hefði staðfest þetta og við og fleiri fallið fyrir því er ljóst að pappírsvinnan gekk ekki í gegn.
Real þurfti að fá Guilherme Siqueira frá Granada til að fylla skarð Coentrão, það gekk ekki sem skyldi og því klikkaði þetta.
Skildu eftir svar