Maður vissi ekki alveg við hverju maður átti að búast fyrir þennan leik. Síðustu ár hefur liðið verið steingelt í riðlakeppni Meistaradeildarinnar, satt best að segja var oft hundleiðinlegt að horfa á þá. Bætum því við að David Moyes hefur aldrei stýrt liði á þessu stigi knattspyrnu.
Þegar byrjunarliðið var hinsvegar birt var slegið á allan vafa og efa sem maður hafði fyrir þennan leik. Moyes stillti upp sterku byrjunarliði. Kagawa var frelsaður og fékk að byrja ásamt Fellaini. Maður fann bara á samfélagsmiðlunum eftir að liðið hafði verið birt að menn voru spenntir fyrir því að horfa á þennan leik. Byrjunarliðið var svona:
De Gea
Smalling Vidic Rio Evra
Carrick Fellaini
Valencia Rooney Kagawa
RvP
Pælum aðeins betur í liðinu og taktíkinni á eftir og rennum aðeins yfir gang leiksins.
United stjórnaði leiknum frá byrjun. Fellaini var öflugur á miðjunni og stoppaði flest það sem Leverkusen reyndi að gera. Kagawa var að finna pláss og menn voru sprækir. Á 22′ mínútu kom svo fyrsta mark leiksins. Robin van Persie dundaði sér með boltann við vinstri hornfánann í svona korter áður en hann kom boltanum á Evra sem gaf beint á Rooney. Hann gerði vel í að taka boltann á lofti og koma honum inn en líklega átti markið ekki að standa þar Valencia var rangstæður, stóð beint fyrir framan markmanninn og hafði talsverð áhrif á hann. Markið stóð og okkar menn komnir 1-0 yfir. Þannig stóðu leikar í hálfleik og fátt sem benti til annars en að United myndi sigra þennan leik. United var að spila taktískan og agaðan leik og Leverkusen átti engin svör.
Seinni hálfleikur var opnari en sá fyrri enda. Wayne Rooney klúðraði færi ársins þegar hann gaf/skaut fyrir opið markið og tókst hvorki að hitta markið né gefa á van Persie. Þetta hefði getað reynst dýrkeypt þar sem Leverkusen menn brunuðu í sókn og skoruðu mark beint í andlitið á okkur. Simon Rolfes átti fallegt skot og jafnaði metin. Eftir markið lifnaði aðeins yfir Þjóðverjunum og þeir voru nálægt því að skora rétt áður en Robin van Persie kom okkur aftur yfir. Valencia gerði vel á hægri kantinum og gaf flottan bolta fyrir sem Robin van Persie tók á lofti. Hann skaut reyndar beint á markið og í gegnum markmann Leverkusen sem gerði sitt versta í markinu og inn fór boltinn.
Eftir varnarmistök kláraði Rooney svo leikinn með sínu öðru marki og sínu 200. fyrir félagið. Hann var aftur að verki þegar hann lagði upp fjórða mark United eftir frábæra skyndisókn. Antonio Valencia skoraði það mark og fagnaði vel og innilega með því að minnast á Chucho Benitez, liðsfélaga sinn með landslið Ekvador og fyrrum leikmann Birmingham er lést fyrir skömmu. Leverkusen lagaði stöðuna aðeins eftir hornspyrnu og lokatölur því 4-2. Robin van Persie fékk reyndar frábært tækifæri til að skora fimmta mark leiksins þegar hann skaut framhjá um það bil 25 cm frá opnu marki. Engu að síður, 4-2 sigur niðurstaðan og flott frammistaða í þessum opnunarleik David Moyes í Meistaradeildinni.
Þetta var mjög skemmtilegur leikur og gaman að horfa á United í þessum leik. Ég er sannfærður um að í leiknum höfum við fengið að sjá það leikskipulag sem David Moyes hyggst nota í vetur og við ræddum m.a. annars um í þessum pistli. Er það einhvernveginn svona:
Það sást í leiknum að Kagawa var stillt upp á vinstri kant en hann fékk samt leyfi til að færa sig inn á miðjuna þar sem hann eyddi mestum hluta leiksins. Það er sú staða þar sem hann kann best að spila og þar sem hann nýtist mest. Í fyrri hálfleik var hann sprækur við að sækja og fá boltann. Í seinni hálfleik var hann ekki jafn áberandi enda augljóslega orðinn þreyttur sem rennur stoðum undir það að hann sé einfaldlega ekki í fullkomnu leikformi. Það að Kagawa dró sig inn á miðju gerði það að verkum að Evra þurfti að kovera allan vinstri kantinn sem hann gerði vel og lagði m.a. upp fyrsta markið. Fellaini koveraði svo fyrir Evra þegar hann fór upp kantinn. Smalling færði svo svo nær miðvörðunum þannig að við vorum með nánast þriggja mannar varnarlínu með þá Carrick og Fellaini fyrir framan.
Það að hafa Fellaini þarna er lykilinn að öllu þessu. Hann datt niður og var eins og veggur á miðjunni og dekkaði t.d. Sidney Sam út úr leiknum sem frelsaði Evra, hann gat leyft sér að sinna sóknarhlutverkinu sem hann varð að gera til að skapa breidd á vellinum, enda Kagawa að spila meira á miðjunni. Þetta virkaði vel og ég er sannfærður um að þegar Kagawa verður kominn í fullt leikform og menn farnir að venjast þessari uppstillingu mun liðið komast á blússandi siglingu. Ég hvet menn til þess að fylgjast með þessu og sjá hvort þetta verði ekki rauninn á næstunni.
Allt í allt virkilega örugg frammistaða hjá okkar mönnum, mjög evrópukeppnisleg ef svo má að orði komast og traustvekjandi að Moyes hafi stillt leiknum rétt upp. Vissulega voru Bayern Leverkusen-menn ekkert sérstaklega öflugir í þessum leik en það má að mikli leyti skýra með því hvað okkar leikmenn voru þéttir og öruggir í sínum aðgerðum.
Liðið stóð sig allt vel og vann virkilega vel saman sem heild. Mér fannst Smalling góður og Fellaini var öflugur varnarlega. Hann átti þónokkuð margar feilsendingar í leiknum en vann upp fyrir það með að brjóta upp sóknir Leverkusen. Antonio Valencia var virkilega góður í þessum leik og minnti mann á hvernig hann spilaði á þarsíðasta tímabili. Maður leiksins var þó klárlega Wayne Rooney. Hann skoraði 2 mörk og lagði upp eitt og var hreinlega allt í öllu. Moyes er að ná góðum frammistöðum út úr honum þrátt fyrir farsan í sumar. Það var svo meistaralega gert hjá Moyes að skipta honum útaf eftir þessa frammistöðu. Rooney vill vera elskaður og spilar best þegar hann finnur fyrir því að stuðningsmennirnir dá hann. Hann fékk dúndrandi lófaklapp fyrir frammistöðu sína og þetta hefur kveikt í honum fyrir leikinn gegn City og vonandi heldur hann áfram uppteknum hætti að skora gegn City um helgina.
jon says
þetta er helvíti sterkt lið sem við erum að stilla upp..
veit eitthver hvað er að frétta af mínum heitt elskaða ZAHA ??? var hann bara allt í einu ekki nógu góður til að koma inná meira seigja ???
Runólfur says
Er ég sá eini sem vill frekar hafa Fabio í RB heldur en Smalling? Finnst Smalling alveg hreint arfaslakur í hægri bakverðinum.
Pétur says
stefnir þetta ekki bara í blússandi sóknarbolta með 3 manna varnarlínu og evra hátt uppi á vinstri kanti? það væri allavega eitthvað sem ég væri til i að sja
Egill says
Rosalegt byrjunarlið, það á að sækja öll 3 stigin í kvöld. Gríðarlega ánægður með þetta.
Sigursteinn Atli Ólafsson says
ert ekki einn um það , er hann ekki miðvörður fyrst og fremst? @ Runólfur:
Tryggvi Páll says
Jú, hann er miðvörður að upplagi. En athyglisverð pæling hjá Pétri, er þetta ekki bara málið, sérstaklega ef Evra á púlla Baines á þetta?
Gunnar Ingi says
Hvar er Nani?
Hjörvar Ingi Haraldsson says
Flott lið en eins og margir þá spyr ég hvar Zaha sé. Hefði viljað sjá hann á bekknum
Egill says
Hann er í banni. Menn virðast eiga rosalega auðvelt með að gleyma því miðað við hversu mikið sjokk það var þegar hann fékk rauða spjaldið ;)@ Gunnar Ingi:
Robbi Mich says
Öflugt lið og spennandi uppstilling. Þetta hlýtur að vera öruggur sigur.
ellioman says
Kagawa í byrjunarliðinu vúbb vúbb!
jon says
virkilega sammála þér í þeim málum .. skil ekki afhverju við þurfum að vera nota miðverði í bakverði höfum gert það síðustu 2-3 ár
jon says
hver er í banni ???
Egill says
Nani er í banni @ jon:
Með bakverðina, ætli það sé ekki vegna þess að menn eru enn að bíða eftir því að Fabio verði klár í að spila meira? Jones er frábær í bakverðinum þótt maður vildi frekar hafa hann annarsstaðar, og Smalling er góður varnarmaður þótt hann skili ekki miklu sóknarlega. Um leið og Fabio fer að komast í form og nær að halda sér meiðslalausum held ég að Smalling og Jones fari oftar í miðvörðinn, reyndar eru þeir í hörku baráttu um sæti við Evans, Vida og Rio, þannig að þeir fá þó allavega spilatíma í bakverðinum.
diddiutd says
@ Egill: jones er MIÐVÖRÐUR end of discussion..!!
Emil says
Ég ætla að spá að Kagawa sjúgi hræ í þessum leik bara því fólk er búið að grenja svo lengi yfir litlum spilatíma hjá honum. Það væri eitthvað svo mikið eftir bókinni. En hann má samt alveg setja þrennu, það væri fínt.
Þrususterkt lið – það er sennilega (og vonandi) planið að hafa Evra í hálfgerðum rennilás ofar á vellinum og Smalling þá meira varnarsinnaðan.
Liðið bíður uppá mikla möguleika á flottum sóknum og það endar vonandi með sem flestum mörkum.
Svo er spurning hvort maður eigi að hafa áhyggjur af þessum Kísslíng gæja, hann var í liði vikunnar í þýsku deildinni eftir helgina svo hann virðist geta gert eitthvað.
2-0 öruggur sigur, Valencia og RVP (ó) með mörkin og sigur í fyrsta Meistaradeildarleik Moyes verður staðreynd.
Runólfur says
Var að heyra að liðið hjá Leverkusen er rosalega hávaxið. Svo að Smalling er vissulega þarna til að balance-a það út. Einnig er nokkuð ljóst að Kagawa er að drifta inn og Evra fer mjög hátt upp svo það er fínt að vera með basically 3 hafsenta + Fellaini/Carrick f. framan.
Ps. djöfull var ég búinn að gleyma að Nani væri í banni :)
Björn Friðgeir says
Það er alltaf svolitið sætt að skora rangstöðumörk!
Alltaf rangstæður Valencia þegar hann er að trufla markmanninn.
Björn Friðgeir says
Þeir sem voru að kvarta undan Smalling í byrjunarliðinu eru að fá svörin akkúrat núna!
ásgeir says
hvar er jones?
jon says
hvaða steikur herna geta réttlæt það að kagawa sé betri en welbeck
jon says
senda kagawa til baka og fá Reaus
Jón Rúnar says
Senda kaqawa til baka ?
Einhver hér fyrir ofan sem var að horfa á sinn fyrsta united leik í kvöld ???
Ef það er virkilega eitthvað sem ég ekki skil í þessum heimi, þá er það hvernig danny nokkur welbeck á skilið tækifæri eftir tækifæri, þegar að besti leikmaður þýsku deildarinnar 2011 situr á bekknum og fær aldrei séns.
Shinji kagawa er svo troðfullur af talenti sem aðrir leikmenn hafa ekki, hann á bara að fá að vera í sinni uppáhalds stöðu fyrir aftan persie, rooney þá aðeins úti vinstra megin í staðin.
Danny welbeck slysaðist til að skora einhvern skalla á móti real madrid, og í fyrsta leik á þessu seasoni náði hann að chippa yfir markmannin. Og þá er það upptalið. Shinji kagawa byrjaði 19 leiki í fyrra, ekki næstum því alltaf í ,,sinni stöðu“ og skoraði 7 mörk, lagði örugglega eitthvað upp líka. Ef menn ætla í alvuru að fara útiloka kagawa svona snemma, þá eruð þið dæmi um apana sem sögðuð að darren fletcher og johnny evans ættu að drulla sér í burtu þegar þeir stigu sín fyrstu spor á old trafford.
http://www.futaa.com/football/article/kagawa-named-bundesliga-player-of-the-year
________
en mikið djöfull er gaman að sjá wayne rooney í sínu gamla formi, hlaupandi útum allt á fullu og uppskerandi eftir því.
Hjálmar says
Maður getur verið óánægður og ánægður með hitt og þetta.
En tvennt sem ég er virkilega óánægður með…. að brenna af tveim færum fyrir (gal) opnu marki!! Fyrst Rooney sem hefði átt að gefa boltann og svo Persie sem á að gera betur (var ekki svo erfiður bolti).
Gunnþór Sig says
Fannst Rooney og Valencia frábærir i kvöld og vonandi verða þeir svona áfram!!! áfram Man Utd
Tryggvi Páll says
Ég held að það sé alveg ljóst að Kagawa muni verða spilað í þessari stöðu sem hann spilaði í kvöld. Hann mun mjög sjaldan fá að vera einn fyrir aftan framherjann því Moyes vill vera með tvo framherja, helst þá Rooney og RvP saman. Kagawa var á vinstri kantinum í orði en hvenær var hann þar í leiknum? Mest allan tímann var hann í raun að spila í þessari holu og allt sem hann gerði í leiknum var á þessu miðjusvæði sem hann er bestur í.
Það sást hinsvegar í seinni hálfleik að hann var ekki klár í 90. mínútur sem rennur stoðum undir þá kenningu að hann sé einfaldega ekki í 100% formi og það sé ástæðan fyrir því að hann hafi ekki verið að spila, frekar en að Moyes geti ekki notað hann. Þvert á móti held ég að Kagawa verði í lykilhlutverki hjá Moyes í vetur. Lesið sem við skrifuðum um mögulegar uppstillingar Moyes og þá sérstaklega um kantstöðurnar. Ég er sannfærður um að þannig munum við sjá Moyes spila og þannig nær hann að nýta hæfileika Kagawa sem best án þess að fórna öðrum hæfileikaríkum leikmönnum.
ellioman says
Tveir leikir í röð sem Rooney er valinn maður leiksins. Það virðist ekki margt vera að hrjá hann í augnablikinu. Keep it up!
City næst á dagskrá. Það verður eitthvað svakalegt!
Runólfur says
Djöfulsins seinni hálfleik virðist ég hafa misst af.
Miðað við allt sem ég sá voru við nú samt frekar heppnir þó að spilið út á velli hafi gengið upp. Öll mörkin sem við skorum virðast vera gjöf (ein frá línuverðinum og hin frá markverðinum) + við klúðrum 2 dauðafærum skilst mér.
Maður er svo góðu vanur að maður vill alltaf meira :) tek samt 4-2 allan daginn.
jon says
veit samt einhver hvar zaha er svona ángríns hann er ekki einu sinni á bekknum ?
DMS says
Ég veit ekki með ykkur en mér finnst vera búið að vera að strjúka egóinu á Rooney allsvakalega eftir fíaskóið í sumar, en það virðist hinsvegar vera að gefa vel af sér. Rooney er sjóðheitur. Stuðningsmennirnir taka vel á móti honum og vilja halda honum góðum, Moyes gefur út að hann vilji að Rooney spili sem framherji en ekki sem miðjumaður – ég geri ráð fyrir að það sé það sem Rooney vill. Hinsvegar hefði maður alveg viljað sjá hann segjast vera ánægðan hjá klúbbnum þegar fréttamaðurinn spurði hann út í dramatíkina í sumar, varð bara pirraður og sagðist vera ánægður að vera að spila aftur.
Aftur á móti vil ég sjá kauða skrifa undir framlengingu fljótlega. Ég nenni ekki öðru sumri af svona vitleysu, og þá eru forráðamenn United líka komnir upp við vegginn þar sem Rooney mun hafa öll spil á hendi og einungis eitt ár eftir af samningi.
Hvað varðar leikinn þá finnst mér frábært að sjá Fellaini detta svona vel inn í liðið. Það er eins og hann hafi spilað með okkur í nokkur ár. Ég hef sagt það áður og segi það aftur, þessi kaup munu reynast okkur feykilega góð.
Ps: Mikið er ég feginn að Danny Welbeck klúðraði ekki þessum dauðafærum sem bæði Rooney og Robin van Persie fengu. Sá hefði verið tekinn af lífi…
Friðrik says
@ DMS:
Hann hefði nátturulega verið tekinn af lífi afþví hann hefur enga innistæðu fyrir því að klúðra. RVP hefur skorað haug af mörkum og er fyrirgefið að sjálfsögðu enda mun hann skora haug af mörkum í viðbót. Welbeck er á síðasta séns hjá mörgum stuðningsmönnum og svona klúður myndi fylla mælinn , tala nú ekki um ef staðan væri 1-1 eða 0-1 fyrir leverkusen á lokamínótunum.