Þau sem vildu einhvers konar Football Manager úthreinsun, 10 út, 10 inn verða fyrir vonbrigðum. En það var svo sem vitað, þó þurfi að endurnýja liðið þá verður það frekar að taka menn inn frekar en selja. Antonio Valencia er búinn að skrifa undir nýjan þriggja ára samning þannig að hann fær tækifæri til að rífa sig uppúr þeirri lægð sem hann hefur verið í undanfarin tvö tímabil. Honum til varnar var hann í erfiðum meiðslum þar á undan og í fyrra missti hann besta vin sinn úr ekvadorska landsliðinu, Chucho Benítes.
Nú er hann hins vegar staðráðinn í að sanna sig fyrir Van Gaal og Ryan Giggs aðstoðarþjálfari er ánægður með þessa niðurstöðu enda sé Valencia kraftmikill og fljótur leikmaður og afbragðsduglegur við æfingar.
Sjálfur er ég ánægður með þetta, ef einhver af þessum þremur kantmönnum okkar sem allir hafa leikið langt undir getu undanfarið, ætti að fara þá væri það helst Ashley Young.
Narfi Jónsson says
Ég er sáttur við þetta. Vonandi að Valencia komi fullur sjálfstraust eftir gott HM.
Björn Friðgeir says
Sá ekki leikinn í gærkvöld, sýndi hann eitthvað þar?
DMS says
Held að Valencia gæti einmitt verið svona liðsmaður sem gæti blómstrað undir Van Gaal. Hann er svona leikmaður sem er ekki með neitt kjaftæði, bara gerir hlutina sem honum er sagt að gera án þess að tuða yfir því.
Runólfur says
Erfitt að líka illa við Valencia. Er auðmjúkur, leggur sig alltaf 100% fram og væri nánast tilbúinn að deyja fyrir Klúbbinn. Ég fýla þetta allavega. Sammála Bjössa með að ef einhver á að fara þá er það Ashley Young – það má gefa hann mín vegna. Bara losna við þennan launapakka sem fylgir honum.
Heiðar says
Ágætt að hafa Valencia upp á breiddina en hann er aldrei að fara að verða byrjunarliðsmaður í langan tíma í viðbót, bæti hann ekki spilamennsku sína. Hann er mikill nagli og duglegur en það hversu einfættur hann er háir honum gríðarlega.