Allt virðist benda þess að Edward Woodward hafi slegið á þráðinn til helstu blaðamanna því síðla kvölds í gær voru þeir allir með sömu fréttina: Louis van Gaal fær 100-150 milljónir punda til að leika sér með í sumar og jafnvel í janúar ef réttur maður losnar.
Blöðin léku sér svo að nefna þá sem þau halda að séu á innkaupalistanum svo sem Nathaniel Clyne, hægri bakvörð Southampton, Diego Godín miðvörð Atlético, Mats Hummels, Kevin Strootman, Arjen Robben og Gareth Bale. Síðan verður það auðvitað spurning hvað verður um Falcao.
Við ræddum væntanlega leikmannakaup stuttlega í hlaðvarpinu okkar í gærkvöld, og erum almennt sáttir við þessi nöfn. Reyndar var það svo að í hamingjunni eftir þessa síðustu fjóra sigra voru sumir (les: ofanritaður) bara ekkert svo stressaðir yfir því að þurfa að fá Strootman/Vidal/kóng á miðjuna. En hann kemur.
Þegar kemur að því að eyða peningum þá er nú orðið svo að fyrsta spurning sem vaknar er „Hvað með Financial Fair Play?“ Ég leit aðeins yfir þetta og við fyrstu sýn er ekki nokkuð sem ætti að koma í veg fyrir þetta hjá United.
Nánari útlistanir á Financial Fair Play má lesa annars staðar, en í meginatriðum snýst þetta um tvennt:
- Lið mega ekki tapa of miklu (UEFA reglur).
- Laun mega ekki hækka of mikið milli ára(Úrvalsdeildarreglur).
Fyrst að rekstrinum. Ef lið tapar meira en 5 milljónum evra á ári þarf eigandi að leggja til eigið fé og þá má tap nema allt að 45 milljónum evra.
Vissulega hafa tekjur lækkað um ein 10% á fyrsta ársfjórðungi fjárhagsársins 2014-15, þ.e.a.s. í ágúst til október en búist er við að heildartekjur verði á bilinu 385-395 milljónir punda, sem er lækkun úr 433 milljónum árið áður, sem sé, þessi sama 10% lækkun þar. Engu að síður er spáð góðum hagnaði fyrir afskriftir og vaxtagjöld.
Nú er það þannig að leikmannakaup eru ekki færð til gjalda öll í einu heldur afskrifuð yfir samningstímann. Skv. reikningum United þá var afskrift vefna leikmanna á fjárhagsárinu 2013-14 alls 55 milljónir punda, en á fyrsta fjórðungi þessa fjárhagsárs 21 milljón og að óbreyttu því 84 milljónir yfir allt árið. Þá sést að eyðslan í ágúst bætti um 29 milljónum punda í þessa upphæð. Gera verður ráð fyrir að kaupin fyrir 1. ágúst hafi byrjað að afskrifast strax, hvort að það hafi verið hlutfallslega (og þá ekki nema 1/12 af ársafskrift) eða hvort ársskammti af afskriftum hafi verið skellt inn í reikningana, það veit ég ekki.
Búast má við að nýir leikmenn skrifi undir 4-5 ára samninga og því fari vel tæpur fjórðungur af leikmannakaupum inn á reikningana.
Eyðsla uppá 150 milljónir myndi því koma inn sem 35 milljónir punda í ársafskriftir og þá sem aukarekstrargjöld.
Þetta ár verður reyndar örlítið erfitt þar sem hagnaður hefur minnkað en engu að síður er ekki hægt að að sjá að þó við kaupum í janúar þá leið það til taps Að auk kemur inn að nýtt fjárhagsár byrjar 1. ágúst og sama dag hefst samningurinn góði við Adidas, sem gefur litlar fimmtíu milljónir aukalega í kassann á ári og myndi alveg sjá til þess að 35 milljón punda aukaútgjöld myndu ekki leiða til taps í ársreikningi á næsta fjárhagsári.
En sem fyrr segir er það ekki bara spurning um hagnað og tap heldur mega laun ekki hækka úr hófi og þar kemur að hlutum sem eru ekki alveg jafn gagnsæir. Launagreiðslur mega ekki hækka um meira en sem nemur 4 milljónum punda nema á móti komi tilsvarandi hækkun á tekjum. Þetta ár er því frekar erfitt fyrir United því tekjur hafa lækkað. Innanhúss eru samt engin vafaatriði þar, stjórn United ætti að vera með þær tölur alveg á tæru og vita hvað má og má ekki launalega séð þegar við horfum til hugsanlegra janúarkaupa.
Á næsta ári munu hins vegar tekjur snaraukast. Fyrrnefndur Adidas samningur gefur fimmtíu milljórir og ef við komumst í Meistaradeildina má búast við að tekjuskerðing ársins gangi öll til baka og vel það þar sem nýr sjónvarpssamningur fyrir Meistaradeildina tekur gildi næsta haust. Þar gætu verið 100 milljónir bara si svona. Launasamningar sem taka gildi eftir 1. ágúst á næsta ári verða því nákvæmlega ekkert vandamál.
Og ef fótboltabólan springur ekki næstu sex mánuðina verða gerðir nýir og enn stærri sjónvarpssamningar fyrir Úrvalsdeildina eftir hálft ár sem taka gildi 2016.
Ég hef aldrei legið á skoðunum mínum hvað varðar eigendurnar, en eitt er víst þeir hafa alltaf kunnað að reikna. Fyrstu tíu árin sá Sir Alex um það að þeir gátu alltaf reiknað sér í hag og höfðu engar áhyggjur af liðinu. Núna eru þeir loksins búnir að komast að því að það þarf stundum að eyða í liðið og þá erum við svo heppin að fjársog þeirra síðustu tíu árin hefur leitt til þess að félagið stendur undir eyðslunni. Reikningsdæmið hjá þeim verður því fyrst og fremst hvernig klúbburinn stenst Financial Fair Play, og ég held að þó ég treysti þeim í fæstu, þá treysti ég þeim til að reikna það rétt.
Með öðrum orðum: United getur nær örugglega eytt 100-150 milljónum punda í sumar án þess að hafa nokkra áhyggjur af Financial Fair Play.
Eyðsla United í dag er eðlileg, hún tekur mið af því að við erum skuldsettasta liði heims (teljum ekki með lið eins og Real og Barca sem þurfa aldrei að borga skuldir) en engu að síður höfum við fjárhagslegt bolmagn til að kaupa bestu leikmennina. Og erum loksins farnir að gera það.
En það er ekki hægt að skilja við fjármálin á þeim nótum að fólk haldi að eigendurnir okkar séu æði.
Sumarið 2009 seldum við Cristiano Ronaldo á áttatíu milljónir punda. Í staðinn keyptum við þessa pilta:
á samtals nítján milljónir punda.
Ég ætla að leyfa lesendum að ímynda sér hvað við hefðum getað gert ef eyðslan það árið hefði verið nettó, segjum, 50 milljónir og brúttó þá 130, frekar en að vera nettó mínus 60 milljónir.
Hjörvar Ingi Haraldsson says
Er ég eini sem vil ekki verða næsta Real Madrid og finnst þetta bara komið fínt í risakaupum. Núna vinna með þennan hóp og kannski skipta út einum og einum. Þó að við verðum ekki meistarar á næstu 2-3 árum að þá breytir það ekki því að ég vil að það verði núna slakað á í kaupum.
Friðrik says
Ég man alveg þegar Clyne var hjá Crystal Palace og lið úr úrvalsdeildinni fóru að eltast við hann, sá hann held ég fyrst þegar Palace sló United út úr bikarnum á Old Trafford fyrir nokkrum árum, eg furðaði mig á þvi afhverju United reyndi ekki að fá hann á þeim tíma, hann endaði í Southampton og núna fáum við hann ekki undir 25 milljonum punda.
Runólfur Trausti says
Spot on hjá Hjörvari að mínu mati.
Þó það sé gaman að sjá nýja leikmenn og allt það þá er þetta ennþá Manchester United. Væri frekar til í að sjá tíma (og fjármagni ef þess þarf) til að leysa þessa meiðsla krísu. Heill Rafael er t.d. betri en flestir hægri bakverðir á markaðnum – sérstaklega í þann leikstíl sem Van Gaal vill spila.
Björn Friðgeir says
Van Gaal er sammála ykkur Runólfi og Hjörvari!
Var bara ekkert hrifinn af þessu útspili frá Woodward (það er alveg á tæru að þetta var viljandi ‘leki’ innanhúss hjá United og nær örugglega Woodward…)
Hjörvar Ingi Haraldsson says
Einhver hræðsla um að Fellaini sé meiddur þar sem hann var ekki að æfa samkvæmt myndunum af æfingunum
http://www.gettyimages.co.uk/Search/Search.aspx?EventId=527036471&EditorialProduct=ManU
Runólfur Trausti says
http://thepeoplesperson.com/2014/12/04/fellaini-feeling-the-fatigue-of-regular-first-team-football-63093/
Gæti verið að hann hafi bara fengið „day off“. Búið að vera ágætis álag á honum þannig séð – fór á HM, búinn að spila mikið – meiddur í fyrra. Vonandi að menn hafi verið að fyrirbyggja meiðsli. Grunar líka að hann verði hvíldur vs. Southampton en notaður gegn Liverpool.