Hér er lespakki vikunnar!
Lesefni vikunnar:
- Sjöundi þáttur af Podcast-i Rauðu djöflanna fór í loftið í gær.
- Þessi notandi RedCafé virðist hafa góðan skilning á leikspeki LvG (Skyldulesning!).
- Jamie Carragher segir að Louis van Gaal sé nálægt því að ná markmiðum tímabilsins.
- Leikspeki, leikspeki, leikspeki en hvenær mun þetta smella.
- Þessi blaðamaður, eins og fleiri, á í vandræðum með að átta sig á Louis van Gaal.
- Van Gaal var ósáttur við gagnrýni fjölmiðla á Falcao.
- Beina leið að Hvergilandi segir Barney Ronay um um stefnu United undir stjórn Van Gaal.
- Þessi vika hefur verið algjört klúður hjá United og Van Gaal þarf að lagfæra það.
- Hvar eru framfarirnar spyr Miguel Delaney.
- Leikmennirnir sem komu í sumar þurfa að sýna meira.
- Van Gaal þarf að láta liðið spila sóknarbolta segir United Rant.
- Neville skrifar flotta grein um erfiðleika Di Maria hjá United.
- Di Maria þarf meiri hjálp svo hann geti blómstrað hjá United.
- En Michael Cox/Zonal Marking segir að Angel di Maria virðist spila af áhugaleysi.
- Andy Mitten vill ekki sjá Jonny Evans fara.
- Jonny Evans fékk ekki að njóta vafans að mati Paul Wilson.
- FourFourTwo kannar hvert Juan Mata hafi horfið.
- Rafael skoraði þetta fína fína mark fyrir U21 liðið.
- Sir Alex Ferguson heldur áfram að skrifa bækur.
- Telegraph pælir í Bale til United.
- Depay er aftur orðaður við United.
- Adnan Januzaj ætlar sér að vinna titla með United, nema hvað!.
Lag vikunnar:
Mark Lanegan Band – „The Gravedigger’s Song“
Óli says
Man einhver eftir því þegar Van Gaal var með Ajax og stillti varnarveggnum upp á frumlegan hátt? Í staðinn fyrir hefðbundinn varnarvegg voru menn á víð og dreif þannig að markmaðurinn sá alltaf boltann eða eitthvað. Er ég að ímynda mér þetta?
Tryggvi Páll says
Þetta er rétt munað hjá þér. Hér er tilvitnun úr grein eftir Daniel Taylor sem er nr. 4 á listanum í þessum lespakka:
Þetta er þó ekkert miðað við hugmyndir Van Gaal um hvað eigi að koma í staðinn fyrir vítaspyrnukeppni:
Skemmtilegar pælingar.