Blaðamaður Telegraph, Mark Ogden greinir frá því í dag að Louis van Gaal hafi tekið þá ákvörðun um að Radamel Falcao verði ekki áfram hjá félaginu á næsta tímabili. Eins og allir vita var hann á árslánssamningi frá Monaco og viðræður hafa staðið yfir á milli Monaco, United og umboðsmanns hans Jorge Mendes um áframhaldandi veru Falcao hjá félaginu.
Fréttirnar eru að auki í öllum helstu miðlum, s.s. Manchester Evening News og Daily Fail og má því alveg líta á þetta sem staðfest.
Antonio Valencia kvaddi El Tigre með Instagram færslu í gær
Koma Falcao var veðmál, það var vitað frá upphafi og jafnvel þó svona hafi farið þá var það veðmál sem var þess virði að taka. Það var leitt að Falcao gat ekki sýnt sitt rétta andlit á Old Trafford en hann fær nú tækifæri til þess annars staðar
Stefan says
Já hefði verið frábært hefði hann dottið inn, elska þennan leikmann en þú fittar ekki í öll lið.
Líka gat ekki verið meira challenge fyrir hann þar sem United er í svo miklum shaky breytingum og hann að díla við meiðsli og spila í fyrsta sinn í ensku, meina leikmaðurinn er frábær en það er ekkert grín að eiga við þetta svokallaða challenge sem hann tók í september