Leik Manchester United og Bournemouth sem fram átti að fara í dag kl. 14.00 var aflýst eftir að grunsamlegur pakki fannst á vellinum.
Yfirvöld á Old Trafford og lögregla tóku þessu mjög alvarlega og rýmdu völlinn sem virðist hafa tekist án vandræða sem er nokkuð vel gert miðað við að 75 þúsund manns voru mættir.
Sprengjusveit lögreglunnar í Manchester virðist svo hafa sprengt pakkann með hjálp breska hersins. Svo virðist sem að þessi grunsamlegi pakki hafi verið sími víraður við pípu á einu af klósetti vallarsins. Fregnir herma nú að ekki hafi verið um sprengju að ræða en auðvitað er ekki hægt að taka neina sénsa þegar eitthvað svona gerist og svo virðist sem að allir hafi tæklað þetta mál eins vel og hægt er.
The experts' assessment has now concluded and found that the device wasn’t viable. A full search of the stadium is ongoing. #mufc
— Manchester United (@ManUtd) May 15, 2016
Leiknum, sem var hluti af lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar, þetta tímabil var því aflýst og ekki er búið að finna dagsetningu á hvenær leikurinn verður endurspilaður. Hann verður þó líklega spilaður sem fyrst og þá mögulega fyrir luktum dyrum.
Allir hinir leikir 38. umferðar úrvalsdeildarinnar voru spilaðir í dag. Manchester City geri jafntefli í sínum leik sem þýðir að United þarf að vinna upp 18 mörk á City til þess að ná fjórða sætinu. Með öðrum orðum. United er ekki að fara að spila í Meistaradeildinni á næsta ári.
Staðan í deildinni er svona eftir leiki dagsins.
United er öruggt með sæti í Evrópudeildinni, óháð því hvernig leikurinn gegn Bournemouth fer, því að sigur Manchester City í deildarbikarnum þýðir að deildarbikarsevrópusætið færist yfir í deildina. Sigur eða jafntefli þýðir fimmta sætið. Sama hvað, árangur United á þessu tímabili er engan veginn nógu góður.
Við eigum svo auðvitað úrslitaleikinn í FA-bikarnum eftir. Þar getur Louis van Gaal aðeins lagað stöðu sína en horfum bara á hlutina eins og þeir eru:
Þetta er glatað tímabil og mikil vonbrigði.
Siggi says
Búið að fresta leiknum.
Heyrst hefur að ferðataska LVG sé týnd og eru allir að leita af henni því að menn vilja að hann fái hana sem fyrst svo að hann getur drullað sér í burtu.
Egill says
Sprengjusveitin er mætt og mun líklega sprengja pakkann þar sem hann er, þetta er rosalegt.
Ég skil samt ekki af hverju leikurinn var ekki bara færður yfir á Etihad fyrir luktum dyrum, svona eins og City gerir um hverja helgi.
Blue moon says
Loksins gerðist eitthvað spennandi á þessu fyrrverandi leikhúsi draumanna :) Gangi ykkur vel í Europe league!
Ingvar says
Takk fyrir það Blue Moon, þið hefðuð aldrei lent í þessari krísu á ykkar leikvangi, mun aldrei þurfa rýma Emptyhad.
Blue moon says
Hahaha bara verið að kasta steini úr glerhúsi :) Búið að vera ansi tómlegt á OT oft í vetur og spurning hvort menn séu enn að ljúga til um fjölda áhorfenda?
https://www.theguardian.com/football/2013/apr/12/manchester-united-attendances-police-figures
Auðunn Atli says
Þessi frétt er síðan 2013
Blue moon says
Vá hvað það eru margir áhorfendur á leiknum gegn Bournemouth! Greinilegt að það eru ekki margir stuðningsmenn United sem búa í Manchester.