Eftir leikinn í gær fannst mér tilvalið að hlaupa aðeins yfir leikinn, mína skoðun á leikmannahópnum og það sem af er tímabili.
Eins og þau ykkar sem lásu upphitunina fyrir leikinn í gær tókuð eflasut eftir þá var ég sammála Mourinho með flest allar breytingarnar sem hann gerði á liðinu. Hann veit það sjálfur að það þarf að halda leikmönnum góðum og ferskum, því voru flestar breytingarnar jákvæðar, allavega fyrir leik. Þeir leikmenn sem hafa ekki fengið mínútur fengu þær núna, hvernig þeir nýttu þær er svo allt annað mál.
Ég viðurkenni að ég sá ekki leikinn en hef horft á aðalatriðin á netinu, fyrir mér er nokkuð augljóst að leikmenn vissu ekki hvernig átti að bregðast við því að vera hreinlega sparkaðir niður ítrekað allan leikinn. Skiljanlega, þar sem þeir máttu varla sýna tilfinningar inn á vellinum þegar ákveðinn Hollendingur þjálfaði liðið. Það er í svona leikjum sem þú vilt hafa tiltekinn hrokkinhærðan Belga inn á vellinum, fight fire with fire eins og segir á enskunni. Að því sögðu var spilamennskan auðvitað ekki brösug en það er varla við öðru að búast þegar sex leikmenn eru að byrja sinn fyrsta leik í vetur og fimm af þeim hafa ekki spilað staka mínútu.
Að sama skapi má tala um að 4-3-3 leikkerfi United í gær hafi misheppnast harkalega og Wayne Rooney verði að spila í 4-2-3-1 leikkerfinu sem liðið hefur spilað hingað til. Það er allt gott og blessað en fyrir mér er 4-3-3 leikkerfi það kerfi sem liðið ætti að spila og fúnkerar hvað best í þegar sterkustu ellefu leikmenn liðsins eru inn á vellinum.
Eins og ég sagði hér að ofan, með öllum þessum breytingum var nokkuð ljóst að liðið yrði mjög ryðgað. Ég er þó nokkuð viss um að Mourinho hafi ekki órað fyrir því að það yrði í raun jafn ryðgað og raun bar vitni. Aftur komum við að aggressífum leikstíl Feyenoord, ég held hreinlega að menn hafi ekki vitað hvernig átti að bregðast við.
Þrátt fyrir arfaslaka frammistöðu leikmanna þá var samt markið sem Feyenoord skoraði öskrandi rangstaða. Það er leiðinlegt að falla í þessa gryfju en núna annan leikinn í röð er United mögulega að tapa á dómaraákvörðun en mér fannst að liðið hefði átt að fá allavega eina vítaspyrnu gegn Manchester City um síðustu helgi.
Ef þessar ákvarðanir hefðu fallið með liðinu þá værum við allir að tala um að „liðið hefði nú ekki spilað vel en samt náð í úrslit og það væru alltaf einkenni meistaraliða“. Í stað þess eru menn farnir að væla um að Mourinho hafi ekki náð að breyta nægilega miklu eða bæta nægilega mikið, sem er mjög skiljanlegt enda er erfitt að umturna heilu knattspyrnufélagi á einu bretti. Nema þú sért Leicester City.
Þar af leiðandi til að svara spurningunni sem ég spurði í byrjun; Nei það er ekki allt í rugli. Gefum Mourinho tíma, hann skilar ALLTAF titli á öðru tímabili þori ég að fullyrða og venjulega skora liðin hans fullt af mörkum í leiðinni.
Að lokum þá eru hér nokkrur punktar um þá leikmenn sem höfðu ekkert spilað fyrir leikinn í gær:
Matteo Darmian: Komst ágætlega frá sínu, er ekki að fara byrja leiki virðist vera en fyrir mér ætti hann að vera varaskeifa í báða bakverðina. Ég vill halda honum en grunar að hann fari aftur til Ítalíu ef hann sér sig eingöngu sem varaskeifu hjá félaginu.
Marcos Rojo: Virðist ekki vera í United klassa. Hvað hann er að gera í liðinu er ofar mínum skilningi. Í rauninni held ég að liðið hafi ekki náð að selja hann og ákveðið að lána Cameron Borthwick-Jackson í þeirri von um að hann spili 30+ leiki og taki svo við sem varaskeifa fyrir Luke Shaw þegar Rojo loksins fer.
Chris Smalling: Besti varnarmaður félagsins í fyrra og einn besti varnarmaður deildarinnar einnig var ágætur. Augljóslega mjög ryðgaður en frammistaða Eric Bailly og Daley Blind hefur haldið honum út úr liðinu. Mér persónulega finnst þó að hann hefði átt að spila gegn City. Er mikill aðdáandi og vona að hann komi inn í liðið sem fyrst.
Morgan Schneiderlin: Mjög skiptar skoðanir á honum í þessum leik, annað hvort skelfilegur eða arfaslakur. Ég er mikill aðdáandi og ef liðið ætlar að spila 4-3-3 leikkerfi með djúpan miðjumann þá ætti hann að vera fyrsti kostur í þá stöðu. Þó svo að Michael Carrick geti auðvitað vel spilað þá stöðu einnig.
Anthony Martial: Byrjaði vissulega fyrstu leikina en var settur á bekkinn gegn City. Ég sagði á síðasta tímabili að ég hefði enga trú á að hann yrði jafn góður í ár og í fyrra. Ungir leikmenn sem koma inn með svona látum eiga alltaf eftir að ströggla aðeins á næsta tímabili. Raheem Sterling er eflaust besta dæmið. Martial bar liðið nánast uppi, átti svo vonbrigða sumar með Franska landsliðinu á Evrópumótinu og svo var hann auðvitað að standa í erfiðum skilnaði við æskuástina og barnsmóður sína. Ég hef þó 100% trú á að drengurinn rífi sig upp og verði á endanum einn rosalegur leikmaður.
Marcus Rashford: Hefur verið nokkurskonar Super-Sub hingað til og tel ég að það sé ágætt sem stendur. Persónulega finnst mér að hann ætti að spila einn og einn U23 ára leik inn á milli. Viðhalda sjálfstraustinu og þessu markanefi sem hann er með. Hann mun fá fullt af sénsum þó hann hafi ekki skorað í gær. Það gleymist að hann er bara 18 ára gamall. Ronaldo né Messi voru orðnir fastamenn í sínum liðum á þessum aldri.
Ashley Young & Memphis: Úff. Hvað getur maður sagt? Young fær að fljóta með því hann er reynslumikill, enskur og virðist geta leyst báða kantana sem og bakvörðinn. Ef hann sættir sig við að vera varaskeifa í vetur þá er hann ekki að fara fet. Hvað varðar Memphis þá veit ég ekki hvað skal segja. Drengurinn hefur hæfileika, það er ljóst, en það virðist sem sjálfstraustið hjá honum sé algerlega í molum. Og getan eftir því, það er hreinlega vont að horfa á hann spila. Það sem ég skil hvað minnst er hversu mikið hann hefur blásið út síðan hann kom til United, er enginn þjálfari þarna búinn að benda honum á að hann þurfi ekki að lyfta svona mikið eða setja hann á sérstakt æfingaprógram. Hann þarf að finna einhvern milliveg og það fljótt, ásamt því að hann þarf að skora eða leggja upp. Spurning hvort einn eða tveir leikir með U23 þar sem hann valtar yfir mótherjann gæti verið gott fyrir sjálfstraustið.
Dogsdieinhotcars says
Sammála. Sammála og sammála. Hefði orðað sumt öðruvísi en algerlega sammála meistara Runólfi í meginatriðum.
Væri til í að heyra frá þeim sem réttlæta Rojo og Darmian yfir Fosu-Mensah.
Blue Moon says
Rooney átti náttúrulega að vera kominn með tvö gul löngu áður en Bravo braut á honum. Hann var búinn að vera eins og fíll í glervöruverslun og fékk ansi milda meðhöndlun af dómaranum. Síðan hefði City getað fengið víti þegar Bailly braut á Otamendi.
Dómara mistökin voru á báða bóga, en ég er sammála að brot Bravo á alltaf að vera víti.
Én hvert er planið hjá Móra? Ég er búinn að sjá alla leiki United á leiktíðinni og ekki enn séð hvernig Móti vill að United spili. Þið eruð með frábæra leikmenn, en ekkert plan.
Sveinbjörn says
Sammála flestu sem kemur fram í þessum pistli. Við fengum óvenju marga nýja byrjunarliðsmenn inn frá síðasta tímabili, sem mynda þessa frægu hryggsúlu. Bailly, Pogba, Zlatan, svo mætti telja Schneiderlin með þar sem hann hefur spilað lítið hingað til. Allt mjög góðir leikmenn sem þurfa smá tíma til að smella saman. Ef (þegar) Móri nær að láta þá gera það þurfum við ekki að óttast mikið, enda allt frábærir leikmenn. Við höfum góða breidd hvað kantana varðar, og bakvarðarstöðurnar eru alls ekki í slæmum málum, þó ég vildi helst hafa betri mann en Valencia í hægri stöðunni. Spurningin er bara hvort og hvenær þetta smellur saman
Ég hef fulla trú á að það gerist fyrir áramót, og held að eftir það verðum við mun sterkari við erum núna.
Audunn says
Ég ætla ekkert að setja út á þennan pistil og ég fagna málefnanlegri umræðu.
Ég er hinsvegar alls ekki sammála sem pistlahöfundur skrifar.
Í fyrstalagi er það alveg rétt sem Blue Moon segir, City hefði líka átt að fá víti og Rooney fékk að ganga ansi langt, reyndar Fellaini líka ef út í það er farið.
En það er ekki það sem ég ætla að koma aðalega inná, dómgæslan jafnar sig upp og það vita allir sem fylgjast með fótbolta.
Það sem ég vill spyrja, er United i alvöru á þeim stað í´knattsmpyrnulegri getu að það getur ekki unnið lið eins og Feyenoord án Fellaini? í alvöru? Ok það var sagt að það hefði verið gott að hafa hann inná, ég er algjörlega ósammála, hann er svo ruglaður í hausnum og agalaus að það hefði verið búið að reka hann útaf eftir hálftíma leik.
Lið sem telur sig vera eitt stærsta lið í heimi (sem það er þegar kemur að fjárhaldshliðinni og fjölda aðdáenda) ætti að geta unnið smá lið eins og Feyenoord án Fellaini, ef ekki þá erum við ekki að tala um stórlið þegar kemur að knattspyrnulegri getu.
Stórlið saknar ekki leikmanns á hans getustígi, það er pottþétt.
Ég er líka algjörlega ósammála því að Feyenoord hafi verið að sparka leikmenn Man Utd niður allan leikinn, furðuleg fullyrðing frá manni sem horfði ekki á leikinn.
Jú jú þeir voru fastir fyrir á köflum en ekkert sem United á ekki að geta ráðið við, það er líka aumt að ætla að kenna Van Gaal um að menn ráði ekki við smá hörku, þetta eru leikmenn sem gera ekkert annað en að spila og æfa fótbolta allan daginn og fá tugi milj á viku fyrir það.. þannig að ég kaupi ekki svona..
Ég er ekki að sjá hvert Móri er að fara taktíklega séð, það er reyndar erfitt að tala um taktík þegar menn bakka svo mikið að liðið nær aldrei neinum tökum á boltanum sjálfum eins og á löngum tíma gegn City.
Fyrst þarf liðið að geta haldið bolta svo það geti sett upp einhverja taktík sóknarlega, það er alveg á tæru.
Einu breytingarnar sem ég sé á liðinu núna undir Móra er að það bakkar miklu miklu meira og miklu miklu dýpra og heldur því boltanum miklu verr, þetta eru ekki breytingar til batnaðar.
Að því sögðu er ég alls ekkert að segja að ég sé búinn að gefa skít í hann eða ég hafi ekki trú á honum, ég vill bara fara að sjá einhverjar breytingar til batnaðar sem allra fyrst.
Ég vill líka koma inná það að ég er sammála öllu öðru sem kemur fram í þessum pistli, þ.e.a.s þessu um leikmennina sem nefndir eru.
DMS says
Mér hefur fundist líka Pogba vera oft að reyna of mikið. Móri hefur sagt að hann eigi að gleyma þessu verðmiða en það er kannski hægara sagt en gert. Vörumerkið Pogba er kannski að þvælast fyrir honum líka. En mér hefur fundist oft á tíðum hann ekki alveg vita hvar á miðjunni hann á að vera. Á hann að droppa niður og sækja boltann eða á hann að halda sig ofar og fylgja með í teiginn? Kannski vantar bara agaðri miðjumenn með honum. Ég held að við höfum misst af ansi góðum leikmanni í Kante sem fór á ekki svo mikinn pening í sumar. Hann væri flottur í þessa sópvinnu fyrir aftan.
Ég held reyndar að Mourinho hafi tekið við töluvert brotnu liði og það taki meira en bara nokkra leiki til að afvinda vitleysunni sem við höfum verið í undanfarin ár eftir að Fergie hætti. Hann bætti við hópinn í sumar 4 mjög góðum leikmönnum og það er skref í rétta átt. En það þarf líka að hreinsa meira til. Hvað fær Memphis langan tíma til að skrúfa hausinn á sig? Hvenær á að segja þetta gott með Phil Jones? Við erum með dýran miðjumann launalega séð í Schweinsteiger sem á ekki að nota.
Það er ýmis vinna framundan og ég vona innilega að Mourinho sjái þetta sem langtímaverkefni en ekki skyndisigra eins og hann hefur yfirleitt verið í hjá undanförnum félögum.