Annar leikur United í Evrópudeildinni verður á morgun þegar úkraínska liðið Zorya Luhansk kemur í heimsókn. Zorya, eða Dögun, er frá Luhansk austast í Úkraínu þar sem uppreisnarmenn ráða ríkjum og eru því útlagar í dag, þurfa að spila heimaleiki sína fjarri Luhansk.
Liðið er ekki það sigursælasta í Úkraínu enda bæði Dinamo Kyiv og Shakhtar Donetsk frægari og betri. Þetta er þó þriðja árið í röð sem þeir eru í Evrópudeildinni, en í fyrsta skiptið sem liðið kemst í riðlakeppnina. Liðið er að standa sig ágætlega núna, eru í öðru sæti í deildinni eftir níu leiki, á eftir Shakhtar en undan Dinamo. Í fyrsta leiknum í Evrópudeildinni gerðu þeir 1-1 jafntefli á „heimavelli“ í Odessa. Simon Kjær jafnaði leikinn fyrir Fenerbahçe á 95. mínútu. Leikmenn Zorya eru flestir lítt þekktir og enginn umfram annan sem þarf að taka eftir. Eftir streð United í Evrópukeppnum undanfarin ár er þó fjarri því að það þýði að leikurinn á morgun verði auðunninn fyrir United.
Eftir opna æfingu United í morgun og fréttamannafund Mourinho er ljóst að það er keppt að sigri. Zlatan byrjar en annars er meira vitað hverjir eru frá. Phil Jones er enn meiddur og Luke Shaw missti af æfingunni vegna veikinda. Rooney er að auki að glíma við bakmeiðsli og verður ekki með, en flestar fréttir fyrst í dag gerðu ráð fyrir að Rooney spilaði á morgun en ekki um helgina. Einn er sá leikmaður United sem þekkir Zorya betur en aðrir Henrikh Mkhitaryan spilaði gegn þeim á árum sínum hjá Shakhtar og þekkir leikmenn þeirra, en hann verður i besta falli á bekknum.
Ég ætla því að spá sterku liði þó einhverjar breytingar verði. Erfiðast finnst mér að spá miðjunni en vona hreinlega að Pogba fái að hvíla
Leikurinn á morgun hefst kl 19:05
Bjarni says
Heimta mörk og sigur, over and out.