Manchester United byrjaði 2017 eins og það endaði 2016, með sigri. Það má eflaust tala um þægilegan 2-0 sigur enda var liðið manni fleiri í 75 mínútur. Samt sem áður þurfti David De Gea að taka nokkrum sinnum á honum stóra sínum. Juan Mata og Zlatan Ibrahimovic skoruðu mörkin í dag þar sem Mike Dean ákvað samt að stela fyrirsögnunum.
Byrjunarliðið kom mögulega á óvart en Anthony Martial var bekkjaður eftir frábæra frammistöðu í síðasta leik. Hins vegar er hann í litlu sem engu leikformi og því hefur José Mourinho ákveðið að setja hann á bekkinn. Í hans stað kom Jesse Lingard í byrjunarliðið en hann heillaði því miður lítið í dag. Byrjunarliðið var eftirfarandi:
Bekkur: Romero, Smalling (64), Fellaini, Young, Mata (45), Martial og Rashford(57).
Byrjunarlið West Ham er: Randolph, Nordtveit, Reid, Ogbonna, Cresswell, Kouyate, Obiang, Feghouli, Lanzini, Payet og Antonio.
Leikurinn
Fyrstu 10 mínútur leiksins voru mjög rólegar og nokkuð ljóst að bæði lið voru að spila fyrir ekki svo löngu síðan.
Á 15. mínútu leiksins gerðist svo það atvik sem mun stela fyrirsögnunum. Þá lenda Sofiane Feghouli og Phil Jones saman eftir að reyna báðir að tækla boltann. Feghouli er hins vegar of seinn og lendir af fullum krafti inn í Jones sem hafði náð boltanum. Groddaraleg tækling en ég, eins og flestir, bjóst við því að sjá gult spjald. Mike Dean ákvað hins vegar að splæsa í rautt.
Hafandi séð leikmenn á borð við Claudio Bravo og David Luiz sleppa eftir töluvert verri tæklingar þá bjóst maður alls ekki við rauða spjaldinu þarna en Mike Dean er og verður alltaf Mike Dean og ákvað því að henda Feghouli í bað. West Ham höfðu verið varnarsinnaðir fyrsta korterið og var það að fara versna til muna.
Eina almennilega færi United kom þegar það voru 10 mínútur eftir af fyrri hálfleik. Þá átti Darren Randolph hreint ótrúlega markvörslu þegar hann blakaði skoti Antonio Valencia af markteig út úr markinu. Það sem var í raun ennþá ótrúlegra var það að Jesse Lingard tókst að skófla frákastinu í stöngina þrátt fyrir að vera nánast inn í markinu þegar boltinn barst til hans.
Lingard til varnar þá barst boltinn mjög óvænt til hans og í raun náði hann ekki að gera neitt nema rétt snúa vinstri fætinum áður en boltinn skaust í hann. Að því sögðu þá var þetta samt sem áður ótrúlegt klúður. Undir lok hálfleiksins átti Manuel Lanzini mjög gott skot sem De Gea varði vel. Var varslan mjög svipuð og hjá De Gea gegn Liverpool fyrr í vetur.
Staðan var því markalaus þegar gengið var til búningsherbergja.
Mourinho ákvað að auka sóknarþunga sinna manna strax í leikhléi en Matteo Darmian, sem hafði átt allt í lagi leik í vinstri bakverðinum, kom útaf fyrir Juan Mata. Það þýddi að Marcos Rojo færðist yfir í vinstri bakvörðinn og Michael Carrick droppaði niður í hafsent. Mjög rökrétt skipting en United var meira og minna með boltann allan fyrri hálfleik.
Þrátt fyrir skiptinguna þá gerðist lítið sem ekkert fyrsta korterið í seinni hálfleik. Það var ekki fyrr en Marcus Rashford kom inná fyrir áðurnefndan Lingard sem hlutirnir fóru að gerast. Fyrst fékk Michael Antonio algjört dauðafæri fyrir West Ham þegar hann slapp einn í gegn en sem betur fer er hann betri að klára færi með höfðinu en fótunum og varði De Gea vel frá honum.
Strax í næstu sókn komst Manchester United yfir. Rashford óð upp vinstri vænginn áður en hann tékkaði til baka og lagði boltann út í teiginn á Mata sem kom aðsvífandi og flengdi boltanum í netið. Staðan orðin 0-1 og um leið var Chris Smalling tilbúinn að koma inná fyrir Henrikh Mkhitaryan.
Stuttu síðar átti Rashford svipaðan sprett en í þetta skiptið skaut Paul Pogba framhjá. Rashford hélt svo áfram að láta til sín taka en hann átti skot sem Randolph missti undir sig en því miður fór boltinn í stöngina en ekki yfir línuna.
Zlatan Ibrahimovic gerði svo endanlega út um leikinn þegar það voru rúmar 10 mínútur eftir en varnarmaður West Ham hreinsaði boltann í Ander Herrera sem barst þaðan til Zlatan sem flengdi boltanum í netið. Mögulega var Zlatan aðeins fyrir innan þegar boltinn barst til hans en eftir að það var tekið mark af honum á laugardaginn þá var honum, og eflaust öllum stuðningsmönnum Manchester United, alveg sama.
Eftir annað markið var leiknum í raun lokið og ógnaði hvorugt lið af neinu viti síðustu mínúturnar.
Punktar
- Liðið var mjög lengi að finna lausnina á þéttum varnarmúr West Ham. Ákveðin líkindi voru með leiknum í dag og mörgum leikjum liðsins í fyrra.
- Það var ljóst að bæði lið spiluðu fyrir stuttu síðan en leikur beggja var þungur og stirður. Skiptingar United breyttu þó miklu enda ferskir fætur sem komu þar inná. Sérstaklega breytti Rashford miklu með hraða sínum.
- United hefur núna unnið sjö leiki í röð og er hægt og bítandi að vinna á liðin fyrir ofan sig sem eru þó lítið í því að tapa stigum.
- Zlatan Ibrahimovic heldur áfram þar sem frá var horfið. Maðurinn skorar og skorar ásamt því að koma sér í fjöldan allan af færum og leggur meira að segja upp inná milli. Stórkostlegur leikmaður.
- United hélt hreinu í fyrsta skipti í langan tíma og má þakka David De Gea fyrir það en hann varði vel frá Lanzini og Antonio í dag.
- Liðið fær nú góða hvíld og verður áhugavert að sjá byrjunarliðið í FA bikarnum á laugardaginn.
Næsti leikur er í hádeginu á laugardaginn en þá mætir Jaap Stam með lærisveina sína í Reading á Old Trafford í þriðju umferð FA bikarsins. Næsti deildarleikur er svo 15. janúar gegn Liverpool á Old Trafford!
Bjarni says
Ætla menn ekki að mæta til leiks einum fleiri eftir gjafmildi dómarans. Allt of hægir og lítið að skapa, ávísun á …………
Omar says
Valencia og Lingard með klúður ársins í fyrsta leik ársins. Kannski sanngjarnt svona afþví að Valencia virkaði bullandi rangstæður, en Lingard? Martial í hjólastól hefði klárað þetta…
Bjarni says
Jæja er ekkert að gerast í leiknum senda inná ferskar lappir, keyra á þá. Enn eitt tækifærið að minnka bilið.
Runar says
Djöfull eru enskir dómarar lélegir nú til dags!
Cantona no 7 says
Flottur sigur og virkilega mikilvægur.
Vonandi heldur sigurgangan áfram .
G G M U
Bjarni says
Aðal atriðið er að halda áfram að safna stigum, ekki hægt að biðja um fallega spilamennsku í hverjum leik séstaklega þegar stutt er á milli leikja. Sigur í dag og vonandi heldur það áfram.
GGMU
Ingi says
Mourinho fær nú bara mitthrós í dag fyrir að bregðast tímanlega við færaleysinu.
Halldór Marteins says
Lingard átti ekki sinn besta dag en skil samt af hverju hann byrjaði. Hans kostir hefðu líklega nýst betur gegn fullmönnuðu West Ham liði sem hefði ekki bakkað eins mikið.
Annars held ég að Mourinho sé ekki aðeins kominn með sitt lið heldur sé hann kominn með mjög gott lag á öllum hópnum. Það er virkilega gaman að sjá skiptingarnar sem hann er að gera þessa dagana. Þær eru að breyta leikjunum verulega
Heiðar says
Frábærar skiptingar hjá Móra í dag. Í akkúrat svona leikjum er ég hrifnari af honum en gamla Sir Alex (þetta er eins og að játa djöflatrú en mér er vonandi fyrirgefið enda á þetta aðeins við ákveðin tilvik!). Ástæðan er sú að Móri hikar aldrei ef illa gengur og er fljótur að bregðast við með viðeigandi skiptingum sem líkt og í dag – virka oft! Fergie gamli var oft ansi íhaldssamur og byrjaði ekki að skipta inn á fyrr en eftir 80+ mínútur þrátt fyrir að lítið sem ekkert gengi. Fannst það oft vera hans helsti galli sem annars voru ekki margir enda besti stjóri allra tíma.
Rashford er magnaður! Hann og Mata leggja bókað eitthvað framlag til liðsins í öllum leikjum sem þeir spila. Magnað! Að sama skapi lýsi ég áfram ákveðnum áhyggjum af varnarleiknum. Höfum oft sloppið vel þökk sé de Gea og öll lið ná að skapa töluvert gegn okkur. Gæti reynst dýrkeypt þegar við förum aftur að mæta toppliðunum.
Grímur says
Hugsunin hjá Ferguson var oft að nýta ferska leikmenn í lok leiks og keyra þá af krafti á þreyttar varnir andstæðinga. Þetta virkaði oftar en ekki. Ætla ekki að tjá mig um hvor strategían sé betri en þetta var ekkert slor hjá Ferguson.
Gott að fá sigur. Lala spilamennska og sigur er það sem þarf til að lið geti orðið meistari. Tímabilið er langt og ekki hægt að hafa flugeldasýningu í hverjum leik.
Dogsdieinhotcars says
Rashford kom fáránlegur inn í leikinn. Allt sem gerðist var í kringum hann.
Pogba er í ruglinu. Hann er bestur í vetur hjá okkur að mínu mati. Svo Zlatan.
Frikki11 says
Lingard getur einfaldlega ekki tekið menn á , meðan Martial og Rashford labba framhjá bakvörðum andstæðingsins auðveldlega. Leikurinn gjörbreyttist um leið og við fengum hraða út á kant með innkomu Rashfords og útaf með Lingard og hættum þessum þungmannalegu miðjuhnoði. Og Martial fær ekki mínótu eftir að hafa átt sinn besta leik á tímabilinu gegn M.Boro , hvaða skilaboð eru það til leikmanna sem eru að reyna sanna sig inn í byrjunarliðið ?
En 6 stig á 3 dögum, frábær endir á jólatörninni.
Björn Friðgeir says
Martial spilaði heilan leik eftir að hafa ekki spilað lengi. Það er alveg í hæsta máta eðlilegt að hann byrji ekki leik tveim dögum seinna. Skulum ekki hafa neinar áhyggjur af þessu.
Valdi Á says
Martial átti að koma inná eftir Rashford en við skoruðum áður en það gerðist. Þá breytti Mourinho planinu og setti Smalling til að eiga við Carroll sem hann vissi að kæmi inná.
Frikki11 says
Veit einhver afhverju Bailly fékk ekki leyfi frá Fílabeisströndinni að spila í gær en Zaha fékk að spila í dag ?