Minni á Djöflavarp vikunnar frá því gærkvöldi.
Eftir þrjá ágæta útisigra í röð er loksins komið að heimaleik. Liðið sem mætir á Old Trafford er Wolverhampton Wanderers sem er held ég eina liðið sem er reglulega þýtt yfir á íslensku en yfirleitt er liðið kallað Úlfarnir. Þessir Úlfar enduðu einmitt í 1. sæti Championship deildarinnar sem er við hæfi þar sem að liðið er talsvert betra en Cardiff og Fulham sem fylgdu Úlfunum upp í úrvalsdeild. Liðið hefur farið þokkalega af stað en liðið hefur gert jafntefli við Everton og Man City, tapað fyrir Leicester og unnið 1:0 sigra gegn West Ham og Burnley ásamt því að sigra Sheffield Wednesday í Carabao bikarnum. Úlfarnir eru í 9.sæti deildarinnar stigi á eftir United sem er í 8.sæti.
Úlfarnir eru með flottan hóp en sérstaklega flotta menn á miðjunni hjá sér en þar stjórna þeir Rubin Neves og Joao Moutinho spilinu ef mikilli list. Markvörður liðsins er einnig hörkugóður en það er enn einn Portúgalinn sem er á mála hjá liðinu, Rui Patricio sem kom frítt liðsins í sumar eftir að hafa rift samningi sínum við Sporting frá Lissabon. Mögulegur veikur hlekkur er framherjinn Raul Jimenez sem er ekki sá allra duglegasti að nýta færin sín og vonum við að hann haldi því áfram á morgun.
United hefur verið á góðri leið frá leiknum gegn Tottenham þó svo að andstæðingarnir hafi kannski ekki verið þeir allra bestu. En þessi svokölluðu minni lið þarf líka að vinna og það hefur hreinlega ekki alltaf verið raunin frá því að Sir Alex hætti með liðið. Liðið er núna búið að spila þrjá útileiki í röð og vinna þá alla og vinna sanngjarnt. Það virðist vera góður andi yfir liðinu og mórallinn í lagi sem reyndar er oft raunin þegar leikir eru að vinnast. En það er ekki útlit fyrir það að stjórinn hafi tapað klefanum amk ekki ennþá.
Skildu eftir svar