Manchester United mætir Club Brugge í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Til að kynna sér andstæðingana er þetta prýðileg byrjun
Í hádeginu verður dregið í Evrópudeildinni. Manchester United er í efra styrkleikaflokki og getur því mætt einu eftirfarandi liða:
APOEL, Bayer Leverkusen, CFR Cluj, Club Brugge, Eintracht Frankfurt, Getafe, FC Köbenhavn, Ludogorets, Olympiakos, Rangers, Roma, Shakhtar Donetsk, Sporting CP eða Wolfsburg
Nóg af möguleikum þarna og við uppfærum í hádeginu.
Heiðar says
Fínn dráttur, stutt ferðalag sem er alltaf betra.
Geri ráð fyrir að Man.Utd. muni leggja mikið upp úr að vinna þessa keppni, líkt og gert var fyrsta tímabilið hans Móra. Það myndi þýða að liðið ætti 9 leiki eftir óspilaða í keppninni. Ofan á það bætist 1-? leikir í FA CUP og einhverjir leikir í deildarbikarnum. Ergo: Það er bráðnauðsynlegt að fara að breikka hópinn, ekki bara til að styrkja liðið heldur hreinlega til að mæta miklu leikjaálagi sem (vonandi) verður fram á vor.
Sé fyrir mér 1-2 leikmenn í janúar til kaups og jafnvel einhverja lánsleikmenn ef slíkt verður í boði.
gummi says
Við erum aldrei að fara vinna þessa keppni með Solskjær sem stjóra því miður hann er bara ekki nógu góður stjóri