Í kvöld fór fram síðari viðureign United og Club Brugge eftir að liðin skildu jöfn 1-1 út í Belgíu. Liðið sem átti að koma United áfram var þannig skipað:
Varamenn: De Gea, Lindelöf, Matic, Lingard (’65), Martial, Greenwood (’72) og Chong (’45).
Gestirnir stilltu upp í 4-3-3.
Bekkur gestanna: Horvath, Mitrovic, Sobol, Diatta, De Ketelaere, Krmencik og Schrijvers
Leikurinn
United setti í fluggír frá fyrstu mínútu og eftir tvær, þrjár góðar sóknir þurfti Mignolet að verja þrumuskot frá Juan Mata strax á þriðju mínútu. Club Brugge snéri strax í sókn og það var smá vandræðagangur á Harry Maguire og Okereke var næstum kominn í færi en miðvörðurinn náði að þvælast fyrir og Bailly kom boltanum í burtu.
United fór beint upp og það var Fred sem átti næsta skot og í þetta skiptið varði Mignolet í horn. Aftur átti United gott skotfæri þegar Ighalo lagði boltann í næstu sókn til baka á Bruno sem átti hörkuskot sem Mignolet varði í stöngina.
Á 11. mínútu kom fyrirgjöf frá gestunum sem David de Gea þurfti að kýla út en boltinn endaði hjá Ricco sem tók hann í fyrsta, innanfótar en yfir markið. United menn stálheppnir því þetta hefði getað gjörbreytt stöðunni og komið gestunum í forystu.
Mikill hraði var í leiknum þessar fyrstu mínútur og skömmu síðar komst Bruno í stórhættulegt færi þegar Wan-Bissaka komst fyrir sendingu hjá varnarmönnum Club Brugge en Simon Mignolet var snöggur út á móti þeim portúgalska og varði vel frá honum.
Eftir þetta syrti í álinn hjá gestunum. Simon Deli ákvað síðan að bregða sér í hlutverk markvarðar á 22. mínútu þegar hann varði skot frá Scott McTominay. Frábært skutla en fáránleg ákvörðun hjá Fílabeinstrendingnum en á punktinn steig Bruno Fernandes gegn Mignolet í markinu.
Eitthvað tafðist þó dómgæslan því þótt dómari leiksins hefði sýnt Deli rauða spjaldið án mikillar umhugsunar þá leið dágóður tími þar til Bruno fékk að taka spyrnuna. En loksins á 27. mínútu flautaði dómarinn og Bruno endurtók leikinn frá því um helgina, tók sitt laglega hopp, villti um fyrir Belganum og sendi hann í vitlaust horn.
1-0 og United manni fleiri á heimavelli og einvígið farið að líta ansi vel út fyrir rauðu djöflana. Eftir markið færðist örlítil ró yfir leikinn þótt United héldu áfram pressunni. Mata og Bruno voru duglegir að finna pláss á milli varnar og miðju gestanna og á 33. mínútu átti McTominay frábæra stungusendingu á Daniel James sem átti því miður arfaslakt skot framhjá úr stórhættulegu færi.
Strax í kjölfarið var Bruno enn eina ferðina kominn með boltann út við vítateigsvinkilinn og fékk að dansa þar og snúa oftar en ég fékk talið, endaði á að stinga inn fyrir vörnina á spænska snillinginn sem náði að senda boltann fyrir markið. Þar var enginn annar en nígeríski prinsinn okkar mættur, Odion Ighalo, sem hefur eflaust sjaldan fengið mark á jafnmiklu silfurfati og í dag. Hann potaði tuðrunni yfir línuna, 2-0 og fyrsta markið frá Nígeríu mætt og vonandi ekki það síðasta á tímabilinu.
Ighalo notaði tækifærið og minntist systur sinnar sem lést í desember, 43 ára að aldri. Örlitlu eftir markið kom Ighalo sér í álitlegt færi með mann á öxlunum en Mignolet var ekki á því að leyfa honum að skora svo fljótt aftur og kastaði sér laglega niður og varði boltann.
Honum tókst þó ekki að halda markinu hreinu mikið lengur en það. United vann boltann hátt upp á vellinum eftir laglega pressu út við hornfánann og boltinn barst til Fred sem bar boltann inn í teiginn, dróg varnarmennina í sig og lagði boltann út fyrir McTominay sem lét boltann svífa í fallegan boga út við stöngina svo boltinn söng í netinu. 3-0 og einvígið svo gott sem búið og tími til að leyfa kjúklingunum að spreyta sig í síðari hálfleik og hvíla lykilleikmenn fyrir erfiðan útileik gegn lærisveinum Ancelotti í Everton.
Síðari hálfleikur
Það var eins og við mátti búast, Tahith Chong kom inn á í hálfleik í stað Daniel James. Lítið marktækt gerðist þar til á áttundu mínútu síðari hálfleiks þegar United fékk aukaspyrnu á stórhættulegum stað en spyrnutækni Bruno brást honum og skot hans langt framhjá markinu.
Í kjölfarið kom ágætispressa frá United, en boltinn barst oft til Chong á vinstri vængnum en lítið kom út úr honum framan af. Tvær skiptingar gestanna komu á 62. mínútu þegar Mata fór út fyrir Matej Mitróvic og Tau fór útaf fyrir Krepin Diatta.
Í næstu sókn United kom löng sending inn fyrir sem Tahith Chong elti framhjá varnarmönnum Brugge, en Mignolet handsamaði knöttinn sirka 2 metrum fyrir ofan hollendinginn sem fékk hnéið á belganum í síðuna og þurfti aðhlynningu í kjölfarið. Á meðan notaði Ole Gunnar Solskjær tímann og gerði sína aðra skiptingu þegar Bruno settist á tréverkið eftir enn eina hágæða frammistöðuna og inn á í hans stað kom Jesse Lingard.
Loksins kom þó að því að Chong næði að skapa hættu þegar hann og Shaw komust samhliða upp vænginn inn í teiginn en skot Chong var auðveldlega varið en boltinn barst til enska bakvarðarins sem átti mun betra skot. Mignolet varði þó aftur og hélt stöðunni í 3-0.
Á 71. minútu var Mason nokkur Greenwood búinn að hita upp og tilbúinn að koma inn á í stað McTominay sem er nýstiginn upp úr meiðslum. Flott innkoma hjá Skotanum og kórónaði frammistöðu sína með fínu marki.
Greenwood tókst að koma sér í skotfæri um ellefu mínútum fyrir leikslok en boltinn rúllaði um meter framhjá stönginni og Mignolet andaði léttar. Örskömmu eftir þá sókn vann Shaw boltann af miðjumanni Brugge og kom boltanum á Lingard sem stakk sér inn í vítateig gestanna og þegar Mignolet mætti honum renndi Lingard boltanum út fyrir miðju vítateigsins þar sem Fred þurfi ekki að gera neitt annað en að stýra boltanum í tómt markið og koma í veg fyrir að 3-0 spá höfundar gengi upp.
4-0 og virkilega gott fyrir Brasilíumanninn að komast á blað og ekki síðra fyrir Lingard að fá skráða á sig stoðsendingu. En Lingard vildi einnig komast á blað og þegar lítið var eftir af leiknum braust United í skyndisókn upp hægri kantinn og boltinn barst á Englendinginn úti við vítapunktinn en enn og aftur tókst Mignolet að verja enda langbesti leikmaður gestanna frá Belgíu.
Því næst átti Chong enn eina tilraunina til að setja mark sitt á leikinn með ágætisskoti sem endaði vitlausu megin við stöngina. Greenwood átti marktilraun örstuttu síðar en inn vildi boltinn ekki. Það vildi boltinn þó gera á síðustu mínútu uppbótartíma þegar Chong brunaði enn eina flugferðina upp vinstri kantinn og renndi boltanum út að d-boganum þar sem Fred kom aðsvífandi á fleygiferð og hamraði boltann eins og heitt stálið. Öllum að óvörum endaði boltinn í netmöskvanum en ekki sem vallarmark í amerískum fótbolta eða í efri stúkunni bakvið markið.
Eftir markið flautaði dómarinn leikinn af og stórsigur United í höfn. Það er því komið á hreint að United er komið áfram í 16 liða úrslit Evrópukeppninnar ásamt Basel, Wolves, Leverkusen, Roma, Istanbul Basaksehir, LASK, Wolfsburg, Getafe, Olympiacos, Shaktar Donetsk, FC Kobenhavn, Inter og Sevilla. Viðureign RB Salzburg og Frankfurt fer fram á morgun.
Arsenal, Ajax, Benfica, Celtic og Sporting eru öll úr leik eftir kvöldið en það er ljós að mótherjar United í næstu umferð verða engir aukvisar. Dregið verður í 16 liða úrslitin í hádeginu á morgun.
Pælingar eftir leikinn
Einkunnir leikmanna.
Sergio Romero (6). Hafði ekkert að gera og komst ekki í mynd í síðari hálfleik. Svo lítið fór fyrir honum að undirritaður mundi vart hvort hann eða sá spænski hefði setið í markinu.
Harry Maguire (7). Stýrði vörninni en hafði óttalega lítið að gera, sérstaklega eftir rauða spjaldið hjá Deli.
Eric Bailly (7). Hefur komið á óvart eftir erfið meiðsl en virðist gera sterka atlögu að byrjunarliðssæti. Ásamt Maguire sá hann til þess að Romero hefði getað sest á bekkinn í síðari hálfleik.
Aron Wan-Bissaka (6). Einfaldlega hafði ekkert að gera en var lítið hætta fram á við.
Luke Shaw (7). Duglegur upp og niður kantinn og tók góðan þátt í sóknarleiknum. Hefur verið stabíll og flottur að undanförnu og hélt uppteknum hætti í kvöld.
Scott McTominay (8). 98% sendingarhlutfall, flestar sendingar á loka þriðjung vallarins (21), 5 unnir boltar og 1 mark á fyrstu 45 mínútum leikmannsins eftir löng og erfið meiðsl, sér til þess að tryggja honum þessa einkunn.
Bruno Fernandes (9). Frábær frá fyrstu mínútu og þar til hann var tekinn útaf. Fær alla í kringum sig til að spila betur og sérstaklega Fred og Mata í þessum leik. Bjó sér stanslaust til pláss á milli varnar og sóknar og tengdi mjög vel við alla þá sem voru nálægt honum. Með tilkomu Portúgalans og vinnusemi hans fá leikmennirnir í kringum hans meira svigrúm til að einbeita sér að sínum leik og það sést augljósast á Fred.
Fred (9,5). Með ólíkindum að þessi leikmaður virtist ekki fyrir sitt litla líf geta komist inn í byrjunarliðið hjá fyrri stjóra liðsins þótt hann hefði borgað með sér en nú rúmu einu og hálfu ári sitja flestallir fótboltaáhugamenn og -konur og klóra sér í höfðinu yfir þeirri staðreynd að Brasilíumaðurinn er búinn að vera okkar besti leikmaður á tímabilinu án nokkurs vafa. Tvö mörk og stoðsending til að kóróna óaðfinnanlega frammistöðu sem djúpur miðjumaður. Maður leiksins.
Fred’s game by numbers vs. Club Brugge:
100% dribbles completed
91% pass accuracy
82% final third passes
6 ball recoveries
3 shots
2 goals
1 assistA dominant midfield performance. 🇧🇷 pic.twitter.com/z4jS13gF4I
— Statman Dave (@StatmanDave) February 27, 2020
Daniel James (6). Átti ágætisleik en var svolítið í skugganum á öðrum stjörnum kvöldins.
Juan Mata (8). Því hefur oft verið fleygt fram að Mata nýtist best gegn „litlu“ liðunum til að brjóta á bak aftur lið sem liggja djúpt og það má vel vera satt en eitt er víst að þegar Bruno er inn á vellinum virkar Mata eins og hann sé nýr maður. Krafturinn og leikgleðin brýst fram í honum og það sást líka á þeim örskamma tíma eftir að Bruno kom inn á í fyrri viðureign liðanna. Sóknarflæðið með þá tvo er mörgum gæðalevelum hærra en við höfum séð í haust og vetur.
Odion Ighalo (7). Fékk loksins tækifæri í byrjunarliðinu og stóð sig vel, kláraði auðvelt færi eftir góðan undirbúning frá Mata og fékk möguleikann á að bæta við. Virkilega góður með bakið upp að markinu í „link-up play“ og var ekkert að leita út á vængina eins og sést:
Discussion:
Look at where Ighalo was receiving the ball. Yes, he was aided by our territory but he hardly drifted wide and was literally camped outside the box. Then, he held onto the ball very well. This is very valuable for a team that wants to progress up the pitch. pic.twitter.com/0llFhyMEW1
— UtdArena. (@utdarena) February 27, 2020
Tahith Chong (7). Drengurinn má eiga það að hann reyndi og reyndi allan síðari hálfleikinn og var ef til vill óheppinn að ná ekki að setja mark. Var þó stundum að taka rangar ákvarðanir og full kærulaus á boltanum en vann það upp með krafti.
Jesse Lingard (7). Já, sjö. Hann var settur í þá erfiðu stöðu að koma inn fyrir eflaust heitasta mann Evrópudeildarinnar (sem er með 6 mörk og 3 stoðsendingar) og eflaust margir sem hafa verið ósáttir við að sjá hann hita upp en Englendingurinn var flottur í kvöld og átti meira að segja stoðsendingu, já gott ef Bruno tekst ekki líka að gera menn betri þó hann sitji á bekknum.
Mason Greenwood (ó). Óheppinn að skora ekki í kvöld, þrátt fyrir takmarkaðan tíma á vellinum. Fann þó tíma til að leika varnarmenn Club Brugge grátt og virtist mjög öruggur á boltanum. Erfitt að réttlæta einkunn fyrir ekki lengri tíma.
Það fyrsta sem vert er að benda á eftir þennan leik er að núna hefur liðið haldið marki sínu hreinu í 18 leikjum á tímabilinu í öllum keppnum. Í stóru deildum Evrópu er PSG eina liðið sem státar af fleiri leikjum án þess að fá á sig mark. Næst á eftir okkur er Liverpool með 17. Auðvitað verður að taka mið af því að United er í Evrópudeildinni en engu að síður bendir þetta til þess að sumarkaupin hjá United hafi styrkt okkur verulega.
Þá hefur gengi liðsins upp á síðkastið verið gott en síðan að leikmannaglugganum var lokað hefur United spilað fimm leiki, unnið þrjá og gert tvö jafntefli og með markatöluna 11-1 úr leikjunum. Þetta ætti að gefa United aukið sjálfstraust fyrir leikjahrinuna sem er framundan en United á magnaðan möguleika á að koma sér aftur í Meistaradeildina á næsta tímabili.
Framundan eru leikir við Everton (úti), Derby (úti í FA bikar), Manchester City (heima), Tottenham (úti) og Sheffield United (heima) en deildarleikirnir verða gríðarlega mikilvægir í baráttunni um 4. sætið (eða 5. sæti haldist FFP refsingin gagnvart City).
Þótt hægt sé að rífast og þræta fram og aftur um hvort Ole Gunnar Solskjær sé rétti maðurinn í verkið eða ekki þá verður ekki annað sagt en að þeir leikmenn sem keyptir hafa verið til liðsins í stjóratíð hans hafi smellpassað inn í liðið og bætta það svo um munar.
Ighalo skilar nákvæmlega þeirri vinnu sem við var að búast, er sterkur targetman í og við vítateiginn, Maguire og Wan-Bissaka stoppa ágætlega vel upp í þau gríðarlega stóru göt sem voru á vörninni okkar, Dan James er orkubolti sem lofar góðu en þarf hvíld og Bruno er tannhjólið sem lætur klukkuverkið snúast og hreyfir við öllum hinum þarna framar á vellinum. Hvar værum við ef hann hefði komið í sumar?
Það verður sífellt erfiðara að mótmæla þeirri staðhæfingu Robbie Savage að United vanti einungis þrjá góða leikmenn í hópinn til viðbótar til að geta blandað sér í baráttu við Liverpool og City. Ef höfð eru til hliðsjónar þau úrslit sem United hefur verið að ná gegn stærri liðum deildarinnar; Chelsea (4-0, 2-1, 2-0), Leicester (1-0), Arsenal (1-1), Liverpool (1-1), Manchester City (2-1, 1-0) og Tottenham (2-1) ásamt þeirri staðreynd að liðið er farið að geta skorað 3-4 mörk í leikjum aftur, nokkuð sem varla sást undir Moyes, van Gaal né Mourinho, má sjá að United á ekki eins langt í land og margir eflaust halda.
Hins vegar þarf að halda áfram á sömu braut og breikka hópinn áfram til að falla ekki í sömu gryfjur og við höfum gert á tímabilinu með því að tapa fyrir Newcastle, Burnley og ná ekki að vinna Southampton, Aston Villa og Bornemouth. Vanmat á andstæðingum og hugsanlega ákveðið leiðtogaleysi á fremsta þriðjungnum kann að vera orsökin og því eru leikmenn með leiðtogahæfileika eins Bruno og Grealish eða Maddison væru kærkomin viðbót við liðið.
Hvaða leikmenn vilt þú sjá að komi inn í sumar sem gætu skipt sköpum fyrir næstu leiktíð og telji þið að United nái að krækja í Meistaradeild á næsta tímabili með því að ná 4. eða 5. sætinu eða vinna Evrópudeildina?
Næsti leikur er á sunnudaginn kl 14:00 gegn Everton á Goodson Park. Ancelotti hefur verið að gera frábæra hluti eftir að hann tók við liðinu í fallbaráttu og verður Everton sýnd veiði en ekki gefin, sérstaklega á heimavelli. Til að halda áfram pressunni á fjórða sætið verður United að taka 3 stig heim til Manchesterborgar!
Nonni says
koma svo
Rúnar P says
We have a new legend at Old Trafford – Bruno Fernades…….
Sindri says
Glæsilegur sigur.
Vinnum í Guttagarði á sunnudaginn, það er bjart yfir.
Karl Garðars says
Vel gert!
Er nú ekki viss um að Pogba labbi inn liðið á kostnað Bruno, Fred eða McTominay. Þeir voru allir flottir.
Og þetta er án efa besta varnarlínan okkar eins og staðan er í dag.
Turninn Pallister says
Fyrst, þá vil ég að Pogba verði seldur í sumar. Blindur maður sér að gaurinn vill ekki spila fyrir klúbbinn. Þá finnst mér miklar líkur vera á því að Grealish verði fenginn (sérstaklega ef Villa fellur). Persónulega er ég hrifnari af Maddison, en er hræddur um að hann yrði of dýr fyrir Woody og co. Þá væri mjög fínt ef við gætum bætt við okkur framherja og hægri vængmanni. Helsta óskin væri að fá fagmenn sem kæmu til að spila fyrir klúbbinn og ekkert bull. Í raun væri mér sama þó svo við bara fengjum Ighalo alfarið (hlýtur að vera falur fyrir ekkert of mikið) og spreðuðum Pogba aurnum í hágæða miðjumann og hægri væng. Leikmenn sem koma til að spila fótbolta, eru lausir við drama og hafa ekki einhvern dickhead sem umboðsmann er eiginlega krafan. Miðað við þau kaup sem Ole hefur hingað til gert, þá treysti ég honum vel til að finna alvöru United leikmenn.
Georg says
Gaman að vinna 5-0 þó það falli í skuggann fyrir markvörslu varnarmanns CB.
Ég er þó á því að við hefðum tekið þá nokkuð örugglega. Megi Brunó haldast heill út tímabilið og ég persónulega vill fá Grealish frammyfir Maddison eftir að hafa horft á fyrrnefndan spila gegn okkur.
Seinna mark Fred var eðalmark og Ronaldo hefði verið sáttur við það skot…
Björn Friðgeir says
Forgangur er hægri kantur, síðan senter sem kannske mætti vera Ighalo ef hann plumar sig.
Ég veit eiginlega ekki um miðjumann að auki ef Grealish kemur. Þá erum við með Fred, McSauce, Bruno og hann í þrjár stöður, og svo Matic, Garner í backup?
Turninn Pallister says
@Björn
Já, átti sem sé við hágæða miðjumann í formi Grealish EÐA Maddison EF Pogba fer (sem ÉG vona). Var ekki að meina 2 miðjumenn. Við erum sammála um að forgangurinn er hægri vængur. Það er staðan sem okkur vantar leikmann í í dag. Ef Ighalo stendur sig þokkalega, þá eigum við ekki að þurfa annan framherja. Erum jú með 2 (Rassa og Grænskóg), + að Martial getur þetta svosem alveg þó svo að hann sé bestur út á kanti.
Björn Friðgeir says
Maðurinn sem við eigum að taka er Kai Havertz á hægri!
Heiðar says
Sælir
Það er rétt að hægri kantmaður er forgangur og þó að miðjan sé búin að snarskána með Bruno og bættum gæðum í Fred og McTominay held ég að Grealish yrði frábær kostur með þeim. Það þarf breidd og menn eins og Matic eru einfandlega of mörgum númerum á eftir eins og staðan er í dag. Væri til í að halda Mata í backup í amk eitt tímabil í viðbót.
Þrátt fyrir að hafa haldið hreinu svona oft finnst mér oft hafa verið óöryggi í vörninni í vetur enda þótt hún sé hátíð frá ástandinu síðasta vetur. Eric Bailly er því betur að koma sterkur inn á nýjan leik. Spurningin er hinsvegar hvað á að gera við Jones, Smalling og Lindelöf. Ég gæti alveg séð fyrir mér að þeir væru allir á útleið á næstu 12-24 mánuðum. Þá vantar 1 stk miðvörð með Harry M og Eric B (sem meiðist nú ansi oft). Ég held að klúbburinn ætti áfram að horfa til þess að ná einu akkeri í viðbót í miðvörðinn frekar en að spila áfram á ákveðnum aðilum sem ekki ríkir full sátt um.
Audunn says
Mjög góður leikur og annar bragur yfir liðinu með komu Bruna, leikmaðurinn sem margir stuðningsmenn kröfðust að liðið myndi kaupa síðasta sumar.. en hann er kominn núna og allir glaðir yfir því.
Hann gefur öðrum leikmönnum í kringum sig aukið sjálfstraust og dregur menn með sér.
Verð að segja að það hlakkar dálítið í manni staða Pogba núna innan liðsins, hún hefur gjörbreyst með komu Bruno því stuðningsmenn eru hættir að nenna að tala um hann og hann er ekki lengur aðal spaðinn á svæðinu. Ég er viss um að það pirrar hann, Pogba er svona eins og Ronaldo, ef það snýst ekki allt í kringum þá sjálfa þá er ekkert gaman lengur.
Vonandi að liðið haldi þessum dampi áfram, að vinna Everton á útivelli á sunnudaginn myndi gera gífurlega mikið fyrir þennan hóp sem og stöðu liðsins í deildinni.
Varðandi kaup í sumar þá væri æði að fá Sancho, Grealish og sterkan miðvörð (veit ekki hver það ætti að vera í augnablikinu)
Hvað varðar framherja þá á United að bíða með þau kaup til sumarsins 2021 og kaupa þá Háland.. Ég persónulega treysti núverandi framlínu að sjá um markaskurun eftir komu leikmanna eins og Bruno og ég tala nú ekki um ef maður eins og Sancho og eða Grealish bætast við.
United getur líka losað sig við um 5 leikmenn í sumar án þess að veikja liðið nokkuð.
Ég er ekki sammála Turninn Pallister ofl að Maddison séu betri kaup en Grealish, þeir hafa báðir sína kosti og ókosti en ég er meira hrifinn af Grealish því mér finnst svo mikill drifkraftur í honum sem og meiri vinnsla en í Maddison. . Hann dregur menn frekar með sér og hikar ekki við að vinna út um allan völl. Maddison er líka frábær, ég myndi alls ekkert gráta komu hans en ef mitt val væri á milli þeirra tveggja í dag þá myndi ég persónulega velja Grealish frekar, Hann er meiri mín týpa ef svo má segja.
Björn Friðgeir says
Bjartsýni mín í fyrrasumar var auðvitað byggð á sandi um hvað við hefðum af peningum. Ef við eigum að vera raunsæ þá eru 50m af eyðslu sumarsins farin í Bruno og í besta falli 50-70 eftir og svo það sem fæst inn fyrir sölu.
Við gætum þá nælt í Grealish á 50m (ef þessi klásúlu er þá til) og síðan selt Pogba. Það væri líklega ekki nóg fyrir Sancho.
Brútal ef rétt reynist.
Audunn says
Getum selt Smalling, Jones, Mata, Rojo, Pogba, Lingard og Pereira. Jafnvel Alexis líka. Það er nóg af mönnum til að selja en eitthvað minna um að lið vilji kaupa þá því miður.
Þetta eru 7 leikmenn sem við ættum að geta fengið umþb 200 milj fyrir í heildina.
Sancho er sagður vera með um 90 milj klásúlu, Grealish 50 þá ætti að vera um 100 milj eftir hefði maður haldið.
Ef Matic fer þá þarf mann í hans stað líka..
En allir þessir sjö leikmenn fyrir utan Mata eru leikmenn sem United hefur ekkert að gera með, Mata er bara orðin frekar hægur en hann nýtist í sumum leikjum en þeim fækkar alltaf á hverju ári. Spurning hvort hann sætti sig við minna hlutverk eða hvort hann vilji færa sig til USA eða eitthvað álíka.
Fyrir þessa sjö leikmenn þyrftum við tvo miðjumenn, miðvörð og mann eins og Sancho. Sjö út og 4 inn í þeirra stað. Eigum stráklinga sem eru betri en þessir leikmenn sem meiga fara.
Karl Garðars says
Myndi alls ekki vilja missa Mata ef hann sættir sig við minna hlutverk (reyndar eins og verið hefur). Hann er góð fyrirmynd, reynslubolti og öðlingur sem gefur alltaf sitt besta í þá leiki sem hann spilar.
Það þarf að hafa svona leikmann í hóp að mínu mati. Er einhver með á takteinum hvað hann er að hafa á viku?
Audunn says
Mata er með 170 þús pund á viku síðast þegar ég vissi.
Sindri says
Mata tók á sig stóra launalækkun síðasta sumar til að spila áfram hjá okkur. Hann verður áfram og gott að nýta hann í svona leikjum til að gefa mönnum sem standa framar hvíld.