Eins og dyggustu lesendur hafa tekið eftir hefur síðan legið í sumardvala. Af ýmsum ástæðum og aðstæðum pennanna var vorið erfitt í að manna skýrslur og fleira og það var því kærkomið sumarfrí sem við tókum okkur.
En nú er komið að alvörunni aftur og pennar hafa peppast upp á ný og planið fyrir haustið lítur vel út.
Við viljum því vara ykkur við að þetta er allt að fara í gang aftur, fyrsta upphitun kemur á morgun með hnausþykku yfirliti yfir sumarið og allt sem því fylgdi. Til að koma þessu vel í gang aftur biðjum við ykkur að vera duglega að deila síðunni okkar á samfélagsmiðlum, kommenta hér og á facebook og hjálpa okkur að koma skrjóðnum á fulla ferð!
Sjáumst!
dr. Gylforce says
Glæsilegt! Ég hlakka til að lesa.
Gunnar says
Glæsilegt, hlakka til vetrarins. Áfram ManUtd 😁
Narfi says
Frábært, ég hlakka til!
Hallmar Thomsen says
Glæsilegt búin að bíða eftir ykkur
Zorro says
Glæsileg..hvetjum nú okkar lið til dáða😉
Bubbi Gullyson says
GGMU ❤️
Hjöri says
Mikið væri gaman að fá upplýsingar og pistla um kvennaliðið okkar í vetur.
Björn Friðgeir says
Hjöri: já við komum reglulega með fréttir og fylgjumst vel með kvennaliðinu!
Guðmundur Kristjónsson says
Ég er tilbúinn