Einu sinni hafði Gáttaþefur hlálegt og heljarstórt nef, en svo komst hann að knattspyrnuhæfileikum sínum, sem því miður fyrir nefið, lágu á sviði varnarleiks. Þar sem ‘þefur var ekki sérhlífinn sveinn var nefið fljótlega komið út um alla kinn á honum.
Skömmu síðar sá Sörinn hvað í pilti bjó og kom með hann á Old Trafford. Sjálfsmark í fyrsta leik var einungis fararheillsfall og fljótlega myndaði hann með Gary Pallister klassískt harðjaxl/flinkur haffsentadúett. Vinir hans kalla hann Steve, leikmenn undir hans stjórn kalla ‘Bless, vonandi færðu aðra vinnu fljótlega’