Í eina tíð var það næstum skylda fyrir ensk knattspyrnulið að hafa leikmann sem, eins og Skyrgámur, litu út eins og þeir hefðu klárað úr öllum pulsupakkanum og drukkið nokkra bjóra á dag síðustu árin. Menn eins og Jan Mölby og Micky Quinn voru álíka að ummáli og að hæð og voru varla verri fyrir vikið. Svo komu menn eins og Sir Alex og Arsène og mikilvægi mataræðis var uppgötvað.
Hann er núna búinn að vera hjá United í rúm fimm ár og hefur einungis leikið 92 leiki, enda verið meiddur sí og æ, eitthvað sem hjálpar ekki ummálinu. En segja ekki myndir meira en mörg orð.
Enda er vitað að skyrát er hollt.